Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Síða 4
Inngangur
Á fyrstu árum IJúnaðarsambands Austurlands var oft á
hverju ári og annað hvert ár gefið út ársrit á vegum þess,
þar sem birtar voru skýrslur um helztu störf sambandsins.
Ársrit þessi komu út af og til, fyrstu 25 starfsár sam-
bandsins.
Á aðalfundi árið 1956 var samþykkt ályktun um, að Bún-
aðarsamband Austurlands gæfi út ársrit á næsta ári. Út-
gáfa ársritsins fórst þó fyrir á árinu 1957, mest vegna þess
að ekki vannst tími til að undirbúa það.
Nú þegar fastir starfsmenn hjá búnaðarsambandinu eru
orðnir tveir, og því rýmri tími til umráða, var ráðizt í að
draga saman það fróðlegasta úr skýrslum þeim, sem gerðar
eru á veguin þess, og gefa það út. Árangur þess starfs er
bæklingur sá, sem hér birtist.
Það er von okkar, sem undirbúið liöfum þetta rit, að það
gefi bændum á sambandssvæðinu nokkra hugmynd um,
hvað er að gerast hjá þessum sameiginlega félagsskap þeirra,
búnaðarsambandinu, og enn fremur geti það frætt bændur
um, hvernig framþróun búskaparins gengur í einstökum
sveitum fjórðungsins.
Aukin kynni bænda, hvers af annars högum, greiða fyrir
auknu og bættu samstarfi. Meira samstarf og aukin sam-
vitund bænda í fjórðungnum mun bezt duga til að efla
félagsleg átök og leiða til meiri framfara og hagsældar á
þessu svæði.