Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 7
9
og íélögin í Fellum og Borgariirði. I’arl að láta þau sitja
fyrir aðstoð næsta ár.
2. Jarðabótaskýrslur. Eg gerði jarðabótaskýrsiur búnaðar-
félaganna í Norður-Múlasýslu. Var þeim lokið fyrri hluta
janúar, og afrit af þeirn þá sent til Bf. Isl. og annað til bún-
aðarfélagsformanna.
3. Skýrslur sauðfjárrœklarfélaganna. Eg vann úr skýrslum
félaganna í Norður-Múlasýslu og var það lang tímafrekasta
starf vetrarins. Yfirlitsskýrslur gerði ég fyrir þrjú félögin,
eða félögin í Vopnafirði, Jökulsárhlíð og Hróarstungu, en
Leifur Kr. Jóhannesson gerði yfirlitsskýrslurnar fyrir
,,Jökul“. Hin félögin í Norður-Múlasýslu gerðu sínar yfir-
litsskýrslur heima fyrir.
4. Undirbúningur að útgáfu ársritsins. Að lokinni allri
skýrslugerð unnum við ráðunautarnir að því að undirbúa
ársrit það, senr hér hirtist.
Hér hafa nú verið rakin stærstu verkefnin, sem ég hefi
unnið að á árinu. Hér verður ekki tilgreint nánar um störf,
sem ekki hafa verið eins tímafrek s. s. fundarsetur, bréfa
skriftir, mælingar ýmiss konar og hin og önnur fyrirgreiðsla
fyrir bændur. Mér virðist sem nokkuð fari í vöxt, að bænd-
ur óski eftir faglegri aðstoð ýmiss konar. En því liefur ekki
verið hægt að sinna eins og skyldi.
Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka öllum bændum á
svæðinu fyrir gott og skemmtilegt samstarf á árinu og fyrir
alla þá gestrisni og fyrirgreiðslu, sem ég hef notið hjá þeim.
Þá vil ég þakka núverandi formanni sambandsins ágætt
samstarf og ekki síður hinum stjórnarnefndarmönnunum,
en með þeim er ég lengur búinn að vinna, og hafa kynni
mín af þeim alltaf verið eins og bezt verður á kosið.
Ekki get ég lokið þessu nráli án þess að minnast hins
látna formanns Búnaðarsambands Austurlands, Páls Her-
mannssonar. Veikindi hans og fráfall á þessu ári var mér
mikið áfall eins og fleirum, senr nrikið höfðu unnið með
honum. Samskipti mín við þennan bráðgáfaða og virðulega