Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 9
Starfsskýrsla
Leifs Kr. Jóhannessonar héraðsráðunautar tímabilið frá
1. júfí 1957 til 1. maí 1958.
Undanfarin ár hefur Búnaðarsamband Austurfands haft
einn ráðunaut í þjónustu sinni, en sú breyting varð á sl.
sumri, að B. S. A. fjölgaði ráðunautum í þjónustu sinni í
tvo. Var ég ráðinn tii starfans og hóf starf 1. júlí 1957. Eg
hafði unnið, sem aðstoðarmaður hjá B. S. A. um tveggja
mánaða tíma sumarið 1956, og vann ég þá aðallega við út-
tekt jarðabóta og slátt á tilraunareitum, undir umsjón Páls
Sigbjörnssonar, sem hefur starfað sem héraðsráðunautur hjá
búnaðarsambandinu og starfar enn. Við Páll höfurn ýmist
unnið að verkefnunum í félagi frá 1. júlí eða skipt þeim
með okkur. Störf þau, sem við höfum unnið að, eru mest
þau sömu og vísa ég því að nokkru leyti til starfsskýrslu
Páls varðandi nánari skilgreiningu á störfum mínum, en
starfsskýrsla mín fer hér á eftir.
Sumarstarf mitt skiptist aðallega milli eftirtalinna verk-
efna.
1. Vinna við áburðartilraunir Búnaðarfræðslu Búnaðar-
félags íslands, sem búnaðarsambadið hefur umsjón nreð.
Stcirfin eru aðallega fólgin í slætti á tilraunareitunum, vigt-
un á uppskeru og töku hey- og jarðvegssýnishorna. Tilraun-
ir {>essar eru staðsettar á sex stöðum á sambandssvæðinu.
2. Úttekt jarðabóta var eitt af aðalverkefnunum. Tók ég
út jarðabætur í eftirtöldum sveitum, ýmist að nokkru eða
öllu leyti: Hróarstungu, Fellum, Fljótsdal, Vallahreppi,
Skriðdal, Egilsstaðahreppi, Seyðisfjarðarhreppi, og Seyðis-
fjarðarkaupstað, Breiðdal, Stöðvarhreppi, Fáskrúðsfjarðar-