Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Síða 10
12
hreppi, Reyðarfjarðarlireppi, Norðfjarðarhreppi, Neskaup-
stað, Helgustaðahreppi og Skeggjastaðahreppi.
Páll tók út jarðabætur í hinum sveitunum og að nokkru
leyti í Skeggjastaðahreppi og Breiðdal.
3. Rœktunaráœtlun fyrir Breiðdal og vísast um lrana í
skýrslu Páls.
4. Búfjársýningar. A sl. sumri fóru fram sýningar á þrem-
ur helztu búfjártegundunum, nautgripum, lrrossum og
sauðfé. Við hrossasýninguna (fjórðungsmót L. H.) vann ég
nokkuð, m. a. var ég í dómnefnd kynbótahrossa á sýning:
unni.
Eg mætti á nautgripasýningum í fjórum hreppum, ásamt
með Olafi E. Stefánssyni nautgriparæktarráðunaut og Páli
Sigbjörnssyni héraðsráðunaut. Var ég í dómnefnd á tveim-
ur sýningum.
Tímafrekastar voru þó sauðfjársýningarnar, en þær stóðu
frá 22. sept. dl 20. okt. Ég mætti á hrúta- og afkvæmasýn-
ingum í 10 hreppum. Aðaldómarar á þessum sýningum, að
undanskildum þremur voru dr. Halldór Pálsson sauðfjár-
ræktarráðunautur og Stefán Aðalsteinsson búfjárfræðingur.
Á tveimur sýningum var ég aðaldómari ásamt Páli Sig-
björnssyni (Borgarf. og Jökuld.) og á einni sýningu odda-
maður dómnefndar (Stöðvarhr.) fyrir dr. Halldór Pálsson.
Að loknum þessum sýningum efndi búnaðarsambandið til
myndarlegrar héraðssýningar fyrir sauðfé, sem sagt er frá á
öðrum stað í ritinu. Var ég í dómnefnd á þeirri sýningu.
Um hrossa- og héraðssýninguna ritaði ég greinar í búnaðar-
blaðið „Frey“.
5. Samanburðartilraun með fjárstofna. Ég eyddi nokkr-
um dögum vegna þessarar tilraunar. Jónas Pétursson ti!
raunastjóri á Skriðuklaustri hefur tekið að sér, að annast
framkvænrd tilraunarinnar með aðstoð ráðunauta búnaðar-
sambandsins. Tilraun þessi fjallar um samanburð á fimm
íjárstofnum, sem eru frá Þistilfirði, Jökuldal, Borgarfirði,
Álftafirði og Skriðuklaustri.