Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 13
Fundargerð
aðalfundar Búnaðarsambands Austurlands, sem
haldinn var 19.-20. júní 1957.
Miðvikudaginn 19. júní var aðalfundur Búnaðarsam-
bands Austurlands settur að Egilsstöðum á Völlum. Fund-
inn sóttu 24 fulltrúar frá 23 sambandsfélögum, stjórnar-
nefndarmenn allir og starfsmaður sambandsins.
Gestur fundarins var Þorsteinn Sigfússon, Sandbrekku,
búnaðarþingsfulltrúi.
I stað formanns sambandsins Páls Hermannssonar, sem
lá veikur, sat fundinn varaformaður þess, Þorsteinn Jóns-
son, og setti hann fundinn og stjórnaði honum. Páll Jóns-
son ritari sambandsins bókaði fundargerð. Fundarstjóri
bauð fnndarmenn velkomna, því næst minntist hann þeirr i
bænda og húsfreyja, er látizt höfðu á árinu á félagssvæðinu.
Fundarmenn risu úr sætum í virðingarskyni við hina látnu.
Að Jressu loknu var gengið til dagskrár og voru eftirtalin
mál tekin fyrir:
1. Skýrsln stjórnarinnar. Sveinn Jónsson flutti skýrsluna.
2. Skýrsla starfsmanns.
3. Reikningar sambandsins fyrir árið 1956. Varaformaður
lagði reikningana fram og skýrði þá.
4. Fjárhagsáætlun ársins 1957. Varaformaður lagði fram
og skýrði tillögur sambandsstjórnar um fjárhagsáætlun.
í þeim var lagt til að árgjöld frá sambandsfélögum
hækkuðu úr 50.00 kr. í 75.00 kr. fyrir hvern félags-
mann. Till. var vísað til Fjárhagsnefndar.
5. Kosið í nefndir. F'jórar nefndir voru kosnar: a) fjárhags-