Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 14
16
nefnd, b) jarðræktarnefnd, c) búfjárræktarnefnd og d;
allsherjarnefnd.
6. Sauðfjdr- og hrossasýningar. Páll Sigbjörnsson innleiddi
málið og var því vísað til Búfjárnefndar að loknum
umræðum.
7. Samanburðartilraunir með sauðfjárstofna. Páll Sig-
björnsson kynnti málið. Því síðan vísað til Búfjár-
nefndar.
8. Búfjártryggingar. Þorsteinn Sigfússon hafði framsögu
og flutti álitsgerð nefndar, sem skipuð var af stjórn
Búnaðarsambands Austurlands, til að athuga frumvarp
frá Búnaðarþingi, um skyldutryggingar á búfé. I nefnd
þessari störfuðu auk Þorsteins, þeir Sveinn Jónsson
Egilsstöðum og Þórarinn Sveinsson Eiðum. Nefndin
gerði tillögur um að frumvarpi Búnaðarþings um
skyldutryggingar yrði breytt mikið og lagði framsögu-
maður fram breytingartillögur hennar. Var tillögu
nefndarinnar vísað til Allsherjarnefndar.
9. Uppeldisstöð fyrir garðplöntur. Framsögumaður var
Páll Sigbjörnsson. Málinu vísað til Jarðræktarnefndar.
10. Fiskirœkt. Sveinn Jónsson skýrði málið. Yísað til Alls-
herjarnefndar.
11. Holdanaut. Sveinn Jónsson hafði framsögu. Málinu vís-
að til Jarðræktarnefndar.
Þegar hér var komið var kl. orðin 12 á miðnætti og var
fundi frestað til næsta dags.
Fimmtudaginn 20. júní kl. 1.40 var fundi haldið áfram.
Nefndir höfðu þá lokið störfum. Fundurinn hófst á því að
Jónas Pétursson tilraunastjóri flutti erindi um tilrauna-
starfsemi á Skriðuklaustri.
Því næst skiluðu nefndir álitsgerðum.
1. Frá Allsherjarnefnd komu þessar tillögur:
a) „Fundurinn felur stjórninni að hlutast til um það við
Vélasjóð og Dráttarvélar h.f., að haldin verði nám-