Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 17
19
hreppafélögin leiti eftir lántöku í Búnaðarbankanum,
til að greiða fyrir ræktunarframkvæmdum í þeint
búnaðarfélögum, þar sem þörfin er mest og geta
bændanna minnst.“
b) Samþykkt var samhljóða tillaga um uppeldisstöð fyrir
garðplöntur, svohljóðandi:
„Fundurinn samþykkir að fela stjórninni, að semja
við Hallstein Tollefsrud garðyrkjumann á Reyðar-
firði, eða einhvern annan — eða aðra — um uppeldi
og sölu á kálplöntum og öðrum garðplöntunr til
heimilisnota á sambandssvæðinu. Jafnframt vill fund-
urinn benda á að æskilegt væri að hafa í tengslum við
þessa ræktun, uppeldi og sölu á blómplöntum til
yndis og prýði á heimilum. Heimilar fundurinn sam-
bandsstjórn að verja allt að 2000.00 kr. árlega til að
ná samningum til framkvæmda í þessu máli.“
c) Varðandi holdanaut var samþykkt þessi tillaga í einu
hljóði:
„Fundurinn áréttar samþykkt frá aðalfundínum
1955, um innflutning holdanauta til kjötframleiðslu
og skorar á Búnaðarfélag íslands og Búnaðarþing að
halda ötullega áfram baráttunni í því máli, enda sé
viðhöfð öll varúð vegna sjúkdómshættu."
d) Svohljóðandi tillaga frá Jarðræktarnefnd var samþ.
í einu hljóði:
„Fundurinn leggur enn sérstaka áherzlu á að Bún-
aðarbankinn komi upp útibúi á Egilsstöðum. Telur
fundurinn að bændastétt Austurlands sé bein lítils-
virðing sýnd með því að þverskallast við síendurtekn-
um áskorunum í þessu máli, um margra ára skeið.“
4. Samþykkt var tillaga frá Pétri Jónssyni:
„Fundurinn felur stjórninni að vinna að því að komið
verði upp svo fljótt sem verða má, kynbótabúi í sauð-
fjárrækt, santkv. till. frá síðasta aðalfundi.“