Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 23
25
graíið með höndum neitt af skurðum svo um liafi munað í
Múlasýslum.
Meira var gert af girðingum í Múlasýslum árið 1957 en
nokkurn tíma áður eða 59.1 km. Árið 1956 voru teknir út
58.2 km. af girðingum en það var mikið meira en nokkurn
tíma áður. Mest var girt í Hjaltastaðaþinghá af einstökum
sveitum árið 1957, 6.2 krn.
Þurrheyshlöðubyggingar hafa aldrei verið meiri en sl. ár
og voru nú rúmlega 14 þús. m3. Arin ’55 og ’56 voru livort
ár byggðar í Múlasýslum lilöður, sem voru nálega 12.500 m3
en aldrei svipað því svo mikið áður.
Steyptar hlöður verða hlutfallslega meiri en hlöður úr
öðru efni eftir því sem lengra líður, þó var byggt furðu mik-
ið af járnhlöðum í Breiðdal sl. ár. Mest var steypt af lilöð-
um í Vopnafirði af einstökum sveitum 2.483 m3, en hlut-
fallslega mest í Álftafirði 2.411 m3.
Furðu lítið var steypt af votheyshlöðum á árinu aðeins
587 m3 í báðum Múlasýslum. Er það mun minna en var
fyrir nokkrum árum. Árin 1954 og ’55 voru byggðar vot-
heyshlöður, sem voru rúmlega 1700 m3, hvort ár. Virðast
rnenn nú smá saman vera að gleyrna erfiðleikuin óþurrka-
sumranna. Aftur á móti er áhugi fyrir súgþurrkun nú fyrst
að vakna hér austan lands, og er dálítið tekið út af súg-
þurrkunarkerfum og mikið fleiri ráðgera að koma súgþurrk-
un í hlöður sínar.
Með vélskóflu voru grafnir nær 292 þús. m3 í skurðum
á sl. ári, er það svipað og grafið hefur verið á undanförnum
árum. Mest var grafið 1956, 378 þús. m3. Nú hafa komið
skurðgröfur í allar sveitir í Múlasýslum nema þrjár, Helgu-
staðahrepp, Mjóafjörð og Loðmundarfjörð. Fyrirhugað er
að grafa í Reyðarfirði og Seyðisfirði á komandi sumri en
á þeim stöðum hefur sáralítið verið grafið enn. Skurðgröftur
stendur nú yfir á Jökuldal og í Borgarfirði. I.íkur eru fyrir
að á næstu tveimur árurn verði leyst úr mestu þörfum með
framræslu hér á svæðinu, þá munu skurðgröfur verða búnar