Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 25

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 25
27 Á töflunni má sjá, hvernig bændur liafa sigið á með jarða- bætur og þær fara stöðugt vaxandi. I>ó hefur verið aftur- kippur í öllum framkvæmdum á stríðsárunum. Það má búast við, að mikið af þeim framkvæmdum, sem gerðar liafa verið á sl. 25 árum séu enn í fullu gildi. Hins vegar, að mest af eldri framkvæmdum séu alveg gengnar úr sér. Þegar túnastærðin nú er borin saman við samanlagða nýrækt og túnasléttur á þessu tímabili kemur fram, að meg- inhluti túnanna er unninn upp eða ræktaður að nýju til á síðustu 25 árunum. Eitthvað af hlöðum úr „öðru efni“, sem tekið var út á fyrri hluta tímabilsins hafa verið byggðar úr torfi. Sá hluti er ýmist hruninn eða lítils virði nú. Aftur mun mikið af hlöðum sem falla undir þennan lið, sem byggðar voru á milli 1940 og 1950 vera gerðar úr herskálum. Mikið af þeim eru góðar heygeymslur, en of algengt er, að ekki hefur verið vandað nógu mikið til uppsetningar þeirra, til að þær endist vel. Vélgröfnu skurðirnir eru að lang mestu leyti grafnir á síðastl. 5 árum. Tafla III gefur yfirlit um framkvæmdir í einstökum sveitum sl. 5 ár, og eru þær gefnar upp sem meðaltal á bónda í hverri sveit. Gefur þetta betri hugmynd um gang framkvæmda í einstökum hreppum, lteldur en sagt væri upp af heildarframkvæmdum í sveitunum, þar sem fjöldi bænda í hverri sveit er mjög misjafn. Fjölda bænda í sumum sveit- um er dálítið erfitt að ákveða. Sérstaklega er þetta vand- kvæðum bundið í nágrenni þorpa, þar sem margir stunda búskap og aðra vinnu samhliða. Reynt hefur verið að kom- ast sem næst tölu raunverulegra bænda og er sums staðar talið tvíbýli þótt jörðum sé ekki formlega skipt, ef þar eru rekin tvö bú. Þeim býlum er sleppt úr tölunni, þar sem bú- skapur er stundaður í hjá-verkum og tiltölulega lítið, þótt um sérmetnar jarðir sé að ræða. Tún eyðijarða, sem liggja nærri byggðum bæjum og notuð eru, eru talin með.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.