Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 30

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 30
r Aburðartilraunir á vegum líúnaðarsambands Austurlands. Sl. ár liafa starfsmenn Búnaðarsambands Austurlands haft með höndum nokkrar áburðartilraunir, sem dreifðar eru um svæðið. Eru þetta tilraunir með vaxandi skammt af kalí (sem hér eru kallaðar tilraun 1), tilraunir rrteð vaxandi skammt af fosfór (hér kallaðar tilraun II) og tilraunir með að bera á stóra skammta af fosfór til margra ára (tilraun III). Tilraunir þessar eru staðsettar á sex stöðum, og hafa staðið yfir sl. 2 ár á fjórum þeirra, Ytri-Hlíð í Vopnafirði, Seljateigi í Reyðarfirði, Gilsárstekk í Breiðdal og Lindar- brekku í Berufirði, en í þrjú ár á Hjaltastað í Utmanna- sveit og Skeggjastöðum í Fellum. Tilraunir þessar eru gerðar eftir fyrirmælum Búnaðar- fræðslu Búnaðarfélags íslands og kostaðar af henni. Til- raunirnar á Skeggjastöðum og Hjaltastað voru þó settar niður á vegum Búnaðarsambands Austurlands en yfir tekn- ar af Búnaðarfræðslunni eftir eitt ár, þar sem þær féllu saman við tilraunir, sem Búnaðarfræðslan lét setja niður allt í kringum land sumarið 1956. Fyrirhugað er, að tilraunir þessar standi yfir í 4 ár þ. e. a. s. 2 ár enn. Hér á eftir fara töflur, sem sýna uppskeru ein- stakra liða í tilraun I (með vaxandi skammt af kalí) og til- raun II (með vaxandi skammt af fosfór) á hverjum tilrauna- stað. Tölur um uppskeru af tilraun III hafa ekkert gildi fyrr en hægt verður að gefa upp uppskerutölur allra til- raunaáranna fjögurra. Tilraunirnar eru allar í fjórum liðum, sent nefnast A, B, C, og D. Allir liðirnir í öllum tilraununum fá santa skammt af

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.