Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 30
r
Aburðartilraunir
á vegum líúnaðarsambands Austurlands.
Sl. ár liafa starfsmenn Búnaðarsambands Austurlands haft
með höndum nokkrar áburðartilraunir, sem dreifðar eru
um svæðið. Eru þetta tilraunir með vaxandi skammt af
kalí (sem hér eru kallaðar tilraun 1), tilraunir rrteð vaxandi
skammt af fosfór (hér kallaðar tilraun II) og tilraunir með
að bera á stóra skammta af fosfór til margra ára (tilraun III).
Tilraunir þessar eru staðsettar á sex stöðum, og hafa
staðið yfir sl. 2 ár á fjórum þeirra, Ytri-Hlíð í Vopnafirði,
Seljateigi í Reyðarfirði, Gilsárstekk í Breiðdal og Lindar-
brekku í Berufirði, en í þrjú ár á Hjaltastað í Utmanna-
sveit og Skeggjastöðum í Fellum.
Tilraunir þessar eru gerðar eftir fyrirmælum Búnaðar-
fræðslu Búnaðarfélags íslands og kostaðar af henni. Til-
raunirnar á Skeggjastöðum og Hjaltastað voru þó settar
niður á vegum Búnaðarsambands Austurlands en yfir tekn-
ar af Búnaðarfræðslunni eftir eitt ár, þar sem þær féllu
saman við tilraunir, sem Búnaðarfræðslan lét setja niður
allt í kringum land sumarið 1956.
Fyrirhugað er, að tilraunir þessar standi yfir í 4 ár þ. e. a.
s. 2 ár enn. Hér á eftir fara töflur, sem sýna uppskeru ein-
stakra liða í tilraun I (með vaxandi skammt af kalí) og til-
raun II (með vaxandi skammt af fosfór) á hverjum tilrauna-
stað. Tölur um uppskeru af tilraun III hafa ekkert gildi
fyrr en hægt verður að gefa upp uppskerutölur allra til-
raunaáranna fjögurra.
Tilraunirnar eru allar í fjórum liðum, sent nefnast A, B,
C, og D.
Allir liðirnir í öllum tilraununum fá santa skammt af