Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Síða 41
43
yfir tilraun á Skriðuklaustri í Fljótsdal, þar sem verið er að
bera saman afurðahæfni nokkurra austfirzkra fjárstofna, þar
á rneðal borgfirzka stofnsins og Holtsstofnsins í Þistilfirði.
Þau ár sem Sauðfjárræktarfélag Borgarfjarðar hefur starf-
að hafa félagsær Björns Jónssonar í Geitavík skilað mestum
afurðum að meðaltali. Reiknaður kjötþungi eftir á hjá hon-
um, meðaltal þriggja síðustu ára, er 22.9 kg. en 23.4 kg.
eftir á sem komið hefur upp lambi. Björn á eina mestu af-
urðaána á sambandssvæðinu, Svölu 5, sem tvisvar hefur verið
sýnd með afkvæmum. Hún hefur á þessum 4 árum, er skýrsl-
urnar ná yfir þrisvar verið tvílembd og skilað þá lömbum,
sem hafa vegið 94.5 kg. lifandi vigt að meðaltali með 38.8
kg. reiknaðan kjötþunga. Eitt árið missti hún annað lambið,
en það sem hún gekk með var lirútur og vó hann 54 kg.
lifandi, að hausti. Annar félagsmaður, Sigbjörii Guðmunds-
son, sem ekki skilaði skýrslum sl. ár, hefur haft meiri arð
eftir ær sínar en Björn þau ár, sem hann hefur skilað skýrsl-
um. Mest hafði hann árið 1956, þá 30.3 kg. reiknaðan kjöt-
þunga eftir á.
Sauðjjárrœktarfélagið „Hjalti“ Hjaltastaðarþinghá.
Það var stofnað seint á árinu 1954 og er því á fjórða starfs-
ári sínu. Þau 3 ár sem félagið hefur starfað liafa 14—17
félagsmenn skilað skýrslum yfir 291—351 á fullorðna auk
nokkurra veturgamalla. Einar Sigbjörnsson Hjaltastað hef-
ur verið formaður félagsins fram til þessa. Reiknaður kjöt-
þungi eftir félagsærnar hefur verið að meðaltali einstök ár
eins og eftirfarandi tafla sýnir:
1955
1956
1957
Eftir á:
15.2 kg
15.9 -
17.3 -
Eftir á, seni kom
upp lamhi:
17.7 kg
17.6 -
18.9 -
Fóðrun hefur verið þannig að ærnar hafa nokkurn veginn