Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Síða 47
49
Eftir ;í, seni kom
Eftir á: upp lambi:
1955 ...................... 17.6 kg 19.8 kg
1956 ...................... 19.9 - 21.4 -
1957 ...................... 19.3 - 20.4 -
Þetta félag er eina félagið í Norður-Múlasýslu, þar sem
afurðir ánna eru minni árið 1957 heldur en árið áður, en á
því munar einu kg. af kjöti eftir hverja á, sem kom upp
lambi. Liggur allur þessi munur í minni frjósemi, þar sem
einstaklingsþungi var meiri síðara árið. Stafar þessi munur
á frjósemi eflaust af lakara viðhaldi ánna fyrri hluta vetrar
síðara árið. Er þetta enn eitt dæmi um, hvað frjósemin og
þar með lambafjtildinn hefur geysimikil áhrif á afurðir fjár-
búanna.
Sá félagsmaður sem mestar afurðir hefuru eftir sínar
félagsær er F.iríkur Einarsson, Hlíðarhúsum. Hann hefur
fengið að meðaltali þau þrjú ár sem skýrslur ná yfir 22.7 kg.
af kjöti eftir hverja á en 23.7 kg. eftir hverja á sem komið
liefur upp lambi.
Hlíðarmenn liafa sæmilegan fjárstofn til að vinna úr.
Þeir hafa lengi sótt sér kynbótahrúta upp á Dal og gera
enn. Á síðustu árum hefur verið flutt þangað talsvert af
hrútum frá Þistilfirði. í Jökulsárhlíð eru rúmar og góðar
afréttir. Þegar Hlíðarmenn hafa komið heyskap hjá sér í
gott horf, en að því sækja þeir nú fast, á sauðfjárræktin þar
mikla vaxtarmöguleika.
Sauðfjárrœktarfélagið „JökulÍ' Jökuidal.
Það er stofnað vorið 1955. Formaður þess er Benedikt
Stefánsson, Merki. Fyrsta árið voru færðar fullkomnar
skýrslur yfir 157 félagsær af 13 félagsmönnum. Árið 1956
voru haldnar skýrslur yfir 169 ær af 16 félagsmönnum og sl.
ár skiluðu 15 félagsmenn skýrslum yfir 223 ær.
Reiknaður kjötþungi hefur að meðaltali verið þessi ein-
stök ár:
4