Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 48
50
Eftir á, scm kom
Eftir á: upp lambi:
1955 ...................... 19.7 kg 21.1 kg
1950 ...................... 19.3 - 21.4 -
1957 ...................... 20.6 - 21.2 -
Mestan fallþunga eftir á, meðaltal þriggja síðustu ára,
hefur Björgvin Sigvaldason, Hákonarstöðum, fengið, 27.0
kg. eftir á og 27.8 kg. eftir á sem komið hefur upp lambi.
Er þetta mesti kjötþungi eftir á hjá einstakling yfir fjár-
ræktarfélögin í Múlasýslum þann tíma, sem þau hafa
starfað.
Þótt nokkur félögin liafi fengið meiri arð eftir meðalána,
en Sauðfjárræktarfél. „Jökull“ hefur það alltaf haft hæstu
einstaklingsvigt dilka, á einlembingum og tvílembingum
sitt í hvoru lagi. En fremur lítil frjósemi og nokkur afföll
á lömbum frá vori til hausts hafa haldið afurðunum niðri.
Mjög rnikill munur er þar á milli afurða hjá einstökum
félagsmönnum.
Á Jökuldal er gamalþekktur fjárstofn, sem kenndur hef-
ur verið við Möðrudal og Efra-Dal. Þaðan hafa verið fluttir
hrútar til kynbóta um allar Þingeyjar- og Múlasýslur og allt
suður í Austur-Skaftafellssýslu, alla tíð siðan að áhugi fyrir
fjárrækt vaknaði hér á landi. Enn búa kostir með Jökuldals-
fénu. Það sýndi sig á héraðssýningunni sl. haust, að þar
finnast frarn úr skarandi einstaklingar. En Jökuldælir þurfa
að kosta kapps um að auka afurðir af fé sínu. Það er ekki
nóg að hafa þung lömb, lambafjöldinn hefur ekki minna
að segja.
Þegar haft er í huga hvílíkt kostaland fyrir sauðfé er á
Jökuldal virðist mega vænta þess að þar sé hægt að stórauka
afurðir eftir hverja kind. Til þess þarf fyrst og fremst að fá
fram meiri frjósemi í stofninn. Þarf að kynbæta féð í þessu
tilliti og auka fóður. Sérstaklega þarf að ala ærnar vel upp
og láta þær ekki leggja mikið af fyrri hluta vetrar. í ræktun-
inni verður auðvitað að reyna að bæta alla eðliskosti fjárins.