Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 49
51
Ekkert fjárræktarfélagið í Múlasýslum hefur meiri mögu-
leika til að ná glæsilegum árangri í sauðfjárræktinni en
Sauðfj árræk tarfélagið ,,Jökull“.
Sauðfjárrœktarféiag Vopnafjarðar.
Það er ári yngra en flest hin fjárræktarfélögin á sam-
bandssvæðinu, stofnað haustið 1955, og því búið að starfa
í tvö ár. Gunnar Valdimarsson, Teigi, er formaður þess.
Fyrra starfsár félagsins skiluðu 23 félagsmenn skýrslum yfir
325 ær en síðara árið 22 félagsmenn yfir 365 ær og auk
þess nokkrar ær veturgamlar.
Reiknaður kjötþungi eftir félagsærnar hefur verið þessi
að meðaltali:
Eftir á, seni kom
Eftir á: upp lambi:
1956 .................... 20.6 kg 22.2 kg
1957 .................... 22.1 - 23.4 -
Mestan kjötþunga eftir sínar félagsær hefur Einar Run-
ólfsson Torfastöðum haft, meðaltal beggja áranna, 27.0 kg.
eftir á og jafn mikið eftir á sem kornið hefur upp lambi, því
að allar félagsær hans skiluðu lömbum bæði haustin.
Sauðfjáxræktarfélag Vopnafjarðar hefur verið rekið af
áhuga þennan stutta starfstíma. T. d. hefur það gengizt
fyrir og kostað smá tilraun, hvort ár, með mismunandi
mikið eldi á ám. Kostaði félagið kjarnfóðrið, sem betur aldi
flokkurinn fékk, en í honum voru nálægt 10 ám hvorn
vetur.
í Vopnafirði er allgóður fjárstofn. Margir félagsmenn í
sauðfjárræktarfélaginu eiga ágætar ær, þungar og holdgóðar
með allmikilli frjósemi. F.n stofninn er full stórgerður og
ber mikið á háum fótum. Myndi þessi galli koma að meiri
sök í landléttari sveitum.
Skilyrði til sauðfjárræktar eru fram úr skarandi góð í
4*