Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 56
58
bæta byggingu þess stofns, sent fyrir er. Með kynbótum og
bættri fóðrun verður skammt að bíða þess, að félagið sýni
ágætar afurðir.
Sauðfjárrœktarfélag Vallamanna.
Féiagið var stofnað haustið Í954. Félagsmenn hafa verið
6—9, sem skilað hafa skýrslu yfir 126—156 ær. Formaður
félagsins hefur verið Sigurbjörn Pétursson, Hafursá.
Félagið hefur skilað skýrslu fyrir þrjú ár og hefur reikn-
aður meðalkjötþungi eftir félagsærnar verið þessi:
Eítir á, sem kom
Eltir á: upp lambi:
1954- 55 .............. 17.70 kg 19.90 kg
1955- 56 .............. 19.90 - 20.03 -
1956- 57 .............. 19.98 - 20.64 -
Afurðirnar hafa heldur auki/.t, einkum frá fvrsta ári, og
hafa verið einna mestar hjá þessu félagi, miðað við önnur
félög í Suður-Múlasýslu. Fóðrun er yfirleitt góð á ánum, en
ekki er hægt að sjá hversu mikið ærnar hafa þyngzt frá
haustvigt til vorvigtar, vegna þess, að þær hafa ekki verið
vegnar öll árin, nema hjá litlum hluta félagsmanna. Starf-
semi félagsins hefur ekki verið með þeim blóma, sem æski-
legt hefði verið, vegna þess, að félagsmenn hafa stundað
búskapinn meir í hjáverkum, en haft aðalatvinnu sína í
gullnámunni „Grímsá“. Félagsstarfið stendur til bóta á
næstunni, vegna breyttra atvinnuhátta, enda hefur verið
nokkur álrugi fyrir fjárrækt á starfssvæði félagsins.
Af félagsmönnum, sem skilað hafa skýrslu yfir öll árin,
hefur Magnús Sigurðsson, Vallanesi, mestar meðalafurðir
eftir ær sínar eða 22.40 kg. kjöt eftir á, sem komu upp
lambi, en 21.24 kg. kjöt eftir hverja á. Síðastliðið ár hafði
Þórir Asmundsson, Jaðri, mestar afurðir eða 21.71 kg. kjöt
eftir á, sem kom upp lambi og jafn mikið eftir liverja á.