Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 56

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 56
58 bæta byggingu þess stofns, sent fyrir er. Með kynbótum og bættri fóðrun verður skammt að bíða þess, að félagið sýni ágætar afurðir. Sauðfjárrœktarfélag Vallamanna. Féiagið var stofnað haustið Í954. Félagsmenn hafa verið 6—9, sem skilað hafa skýrslu yfir 126—156 ær. Formaður félagsins hefur verið Sigurbjörn Pétursson, Hafursá. Félagið hefur skilað skýrslu fyrir þrjú ár og hefur reikn- aður meðalkjötþungi eftir félagsærnar verið þessi: Eítir á, sem kom Eltir á: upp lambi: 1954- 55 .............. 17.70 kg 19.90 kg 1955- 56 .............. 19.90 - 20.03 - 1956- 57 .............. 19.98 - 20.64 - Afurðirnar hafa heldur auki/.t, einkum frá fvrsta ári, og hafa verið einna mestar hjá þessu félagi, miðað við önnur félög í Suður-Múlasýslu. Fóðrun er yfirleitt góð á ánum, en ekki er hægt að sjá hversu mikið ærnar hafa þyngzt frá haustvigt til vorvigtar, vegna þess, að þær hafa ekki verið vegnar öll árin, nema hjá litlum hluta félagsmanna. Starf- semi félagsins hefur ekki verið með þeim blóma, sem æski- legt hefði verið, vegna þess, að félagsmenn hafa stundað búskapinn meir í hjáverkum, en haft aðalatvinnu sína í gullnámunni „Grímsá“. Félagsstarfið stendur til bóta á næstunni, vegna breyttra atvinnuhátta, enda hefur verið nokkur álrugi fyrir fjárrækt á starfssvæði félagsins. Af félagsmönnum, sem skilað hafa skýrslu yfir öll árin, hefur Magnús Sigurðsson, Vallanesi, mestar meðalafurðir eftir ær sínar eða 22.40 kg. kjöt eftir á, sem komu upp lambi, en 21.24 kg. kjöt eftir hverja á. Síðastliðið ár hafði Þórir Asmundsson, Jaðri, mestar afurðir eða 21.71 kg. kjöt eftir á, sem kom upp lambi og jafn mikið eftir liverja á.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.