Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Síða 57
59
Ærstoín íélagsmanna er yfirleitt góður, ærnar eru þroska-
miklar, en nokkuð háfættar. Með því að nota lágfætta þétt-
holda lirúta má bæta fjárstofninn frá því sem nú er. Má
því vænta mikilla framfara í sauðfjárræktinni hjá Valla-
mönnum á næstu árum og er ekki að efa að svo verði.
Sauðfjárraktarfélag Skriðdœla.
Félagið var stofnað haustið 1955, en hefur ekki skilað
skýrslu nema fyrir sl. ár. Þá skiluðu 7 félagsmenn skýrslu
yfir 110 ær. Formaður félagsins hefur verið og er Einar
Pétursson, Arnhólsstöðum.
Síðastliðið ár höfðu félagsmenn að meðaltali 19.59 kg.
kjöt eftir á, sem konr upp lambi, en 18.88 kg. kjöt eftir
hverja á. Mestar afurðir af félagsmönnum hafði Magnús
Hrólfsson, Hallbjarnarstöðum. Hann fékk eftir ær sínar
21.91 kg. kjöt eftir á, sem kom upp lambi, og jafn mikið
eftir hverja á. Ær Magnúsar þyngdust um 7.9 kg. frá hausti
til vors og hafa verið prýðilega fóðraðar eftir þyngdarauk-
anum að dæma. Nokkuð margar af ám hans voru tvílembdar
eða 44.4% og hefur það liaft áhrif á, liversu ærnar þyngdust
mikið.
Afurðir þær sem félagsmenn fengu efitr ær sínar, verða
að teljast allgóðar, ef borið er saman við önnur félög í
Suður-Múlasýslu og þess er gætt að þetta er fyrsta starfsár
félagsins. Má því vænta þess, að á næstu árum verði félagið
komið með góðar afurðir.
Fjárstofn félagsmanna er grófbyggður og margar ærnar
eru háfættar og er því full ástæða til þess, að forðast að
nota grófbyggða hrúta á ærnar. Með því að nota lágfætta
og holdsama hrúta má bæta þann stofn, sem fyrir er.
Starfsemi félagsins hefur ekki náð þeirri útbreiðslu í
sveitinni, sem æskilegt hefði verið. Þó munu vera fleiri
skráðir félagsmenn, en þeir sem skiluðu skýrslu á síðastl.
ári, sem e. t. v. taka þátt í starfseminni á næsta ári. Vonandi