Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Qupperneq 59
61
skapi og í öðrum íélögum. Fóðrun er mjög misjöfn, hjá
sumum er prýðilega fóðrað, en hjá öðrum lakara. Með
jafnari og betri fóðrun, má auka afurðirnar frá því, sem
nú er.
Sauðfjárrœktarfélag Egilsstaðahrepps.
Félagið var stofnað í desember 1957 og hefur því ekki
skilað skýrslu enn þá yfir starfsemi sína. Félagsmenn eru 6
og formaður félagsins er Ingimar Sveinsson, Egilsstöðum.
Þátttaka í félaginu er mjög góð, þar sem fjáreigendur eru
fáir á starfssvæði þess.
Sauðfjárrcektarfélag Norðfjarðarhrepps.
Félagið var stofnað í desember 1957 og fjárstofn valinn í
félagið um það leyti. Félagið hefur því ekki skilað skýrslu,
en gerir það væntanlega á þessu ári. Þátttaka í félaginu er
góð og eru flestir fjáreigendur í sveitinni í því. Formaður
félagsins er Jón Bjarnason, Skorrastað.
Sauðfjárrœktarfélag Fáskrúðsfjarðarhrepps.
Félagið var stofnað á miðjum sl. vetri og kemur því inn i
starfsemina á þessu ári. Fé hefur verið fremur rýrt í sveit-
inni og fremur lítið unnið að kynbótum á undanförnum
árum. Með tilkomu félagsins má búast við auknum fram-
förum í fjárræktinni á næstu árum.
SKÝRSLA
yfir þá félagsrnenn i sauðfjárrcektarfélögunum, sem fengu
25 kg. af kjöti eða meira eftir hverja félagsá árið 1956—57.
1. Einar Runólfsson, Torfastöðum, Vopnafirði 27.68 kg.
2. Björgvin Sigvaldason, Hákonarst., Jökuldal 27.18 —
3. Ragnar Sigvaldason, sama stað 26.52 —
4. Einar Jónsson, Litlu-Grund, Fljótsdal 26.07 —
5. Einar Runólfsson, Ásbrandsst., Vopnafirði 25.87 —