Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Blaðsíða 63
Nautgriparæktarfélögin
Ekki er of mikið sagt, að lítill áhugi hafi verið fyrir naut-
griparækt hér austanlands lengst af. í mörgum sveitum
hafa þó starfað nautgriparæktarfélög eitthvert árabil á þeim
rúmlega 50 árum, sem liðin eru síðan slík félög tóku fyrst
til starfa hér á landi.
Nú eru sjö nautgriparæktarfélög starfandi í Múlasýslum,
en þrjú þeirra eru stofnuð á sl. ári og hafa ekki skilað skýrsl-
um enn. Eru þau félög í Norðfirði, Austur-Völlum og Fell-
um. I Skriðdal, Eiðaþinghá og Vopnafirði hafa starfað naut-
griparæktarfélög sl. þrjú ár, en í Hjaltastaðarþinghá er
gamalt félag, sem þó hafði ekki sent frá sér skýrslur um
nokkurra ára skeið fram til ársins 1955, en hefur skilað
skýrslum síðan. í Breiðdal hefur oft starfað nautgriparæktar-
félag, en ekkert lífsmark hefur verið með því síðustu árin.
Öll félögin, sem nú starfa eiga naut af völdum kynjum.
Flest eru þau komin frá Suðurlandi.
Á sl. sumri voru haldnar nautgripasýningar í Múlasýsl-
um. í þetta sinn voru þær einungis haldnar í þeim sveitum,
þar sem nautgriparæktarfélög voru starfandi, og því aðeins
í fjórum sveitum. Eins og vænta mátti fengu kýrnar ekki
góða dóma. Sex kýr fengu I. verðlaun. Af þeim voru þrjár
í Vopnafirði en ein í hverri hinna sveitanna, verður þeirra
getið hér á eftir. Eélagsnautin í þeim sveitum, þar sem sýn-
ingar voru haldnar fengu öll II. verðlaun. Nautum eru ekki
veitt I. verðlaun nema þau eigi nokkrar dætur, sem búnar
eru að mjólka eitt ár eða meira og það séu góðir gripir.
Hér á eftir verður sagt lítilega frá starfsemi hvers félags
um sig.
5