Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 65
67
Hvanneyri, sem var góð mjólknrkýr með mjög fitumikla
mjólk. Báðir foreldrarnir eru af Kluftastofni.
Mesta meðalnyt sl. ár eftir kýr sínar hefur Jóhann
Magnússon, Breiðavaði. Hann fær að meðaltali eftir 4 fuli-
mjólka kýr 3659 kg. af mjóik með 3.82% fitu og 14.061
fituein. Bezti einstaklingurinn er Ljóma 3, eign Snæþórs
Sigurbjörnssonar, Gilsárteigi. Hún hefur skilað að meðal-
tali þrjú sl. ár 3691 kg. mjólk, 3.87% fitu, þ. e. 14294
fituein.
í Eiðaþinghá er nú orðin allmikil mjólkursala og því full
ástæða til að bæta þar kúastofninn, til að gera framleiðsluna
hagkvæmari.
Nautgriparæktarfélag Hjaltastaðarhrepps.
Það starfar í félagi við búnaðarfélag sveitarinar og hefur
sömu stjórn. Formaður í félögunum er Ingvar Guðjónsson,
Dölum. í Hjaltastaðarþinghá er starfsemin gömul, og hefur
nautgriparæktarfélagið séð um allt nautahald í sveitinni um
áratugi. Ekki er þó hægt að segja að félagið hafi unnið
kappsamlega að kynbótastarfinu. Skýrsluhald hefur t. d.
verið í molum. Hins vegar hefur félagið flutt nokkur naut
af völdum stofnum inn í sveitina, og hafa þau hvert um sig
verið notuð lengi. Kúastofninn býr að þessari íblöndun og
eru kýr í hreppnum t. d. áberandi mikið fituhærri en i
öðrum sveitum austanlands, þar sem fitumælingar hafa ver-
ið gerðar.
Nú á félagið nautið Draupni frá Oddgeirshólum í Árnes-
sýslu. Hann er prýðilega ættaður, undan Austra S 57, frá
Garðakoti í Mýrdal og Laufu 66, Oddgeirshólum, af Klufta-
stofni. Nokkrar dætur Draupnis eru nú bornar fyrsta kálfi.
Það eru fallegir gripir, sem lofa miklum afurðum.
Nythæsta kýr í félaginu, meðaltal þriggja síðustu ára, er
Huppa 2, eign Guðmundar Pálssonar, Svínafelli. Hún skil-
aði 3570 kg. af mjólk með 4.28% fitu og 15.275 fituein.
Huppa 2 er undan Bárði frá Stóru-Völlum í Bárðardal, sem
5*