Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Page 66
68
notaður var í félaginu um rúmlega 10 ára skeið fram yfir
1950. Allar nythæstu kýrnar í félaginu í Hjaltastaðahreppi
eru undan þessu sama nauti. Þegar skipt var um naut og
Draupnir frá öddgeirshólum var keyptur var kúastofninn
farinn að ganga úr sér af völdum skyldleikaræktar. En á því
ætti fljótlega að ráðast bót með tilkomu Draupnis, og þar
með nýrri kynblöndun.
Nautgriparœktarfélag Vopnafjarðar.
Félagið er í tengslum við búnaðarfélag sveitarinnar og
hefur sömu stjórn og það. Formaður félaganna er Friðrik
Sigurjónsson, Ytri-Hlíð. Félagsnaut þessa félags er Huppur,
sem er keyptur úr Mýrdalnum og ættaður þaðan. Hann er
5 ára gamall, sérstaklega fallegur boli og vel byggður.
Nokkrar dætur hans eru nú bornar í fyrsta sinn. Eru það
myndarlegir gripir en liafa ekki þótt áberandi mjólkurlagn-
ar. Nokkuð mikil þátttaka er þarna í félagsskapnum. Meðal-
nyt kúnna er sæmilega mikil, en kýrnar eru mjög misjafnar.
Mjólkurfita virðist yfirleitt vera fremur lítil. Nokkrar kýr
eru þarna það hámjólka á landsmælikvarða, sérstaklega þeg-
ar tekið er tillit til þess að fóðurbætisgjöf er lítil, að ful!
ástæða væri til að setja þarna á eftirlit til að staðfesta afurða-
skýrslurnar. I nýjum búfjárræktarlögum er svo mælt fyrir,
að það opinbera styrki slíkt eftirlit á kúabúum, sem eru
líkleg til að geta selt kynbótagripi.
Nythæsta kýr í félaginu er Búbót 3, eign Gunnlaugs Jóns-
sonar, Felli. Hún hefur skilað að meðaltali 3 sl. ár 4557 kg.
af mjólk með 3.81% fitu, þ. e. 17.362 fituein. Næstar í röð-
inni eru tvær kýr, sem Sæmundur Grímsson, Egilsstöðum á,
þær Búbót 2, sem mjólkað hefur að meðaltali 3 sl. ár 3911
kg. af mjólk með 4.21% fitu, þ. e. 16.465 fituein. og Laufa
5, sem aðeins hefur mjólkað 2 ár lieil en skilaði að meðaltali
hvort ár 4322 kg. af mjólk með 3.86% fitu eða 16.683 fitu-
ein. Þessar þrjár kýr hlutu allar I. verðl. á sýningunni sh
sumar.