Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Qupperneq 71
73
til að binda hrútana við. Litlum stíum var komð fyrir úti
fyrir ærhópana, einni stíu fyrir hvern lióp.
Hrútar úr hverri sveit voru hafðir saman. Voru hengd
upp spjöld hjá hverjum hrút, þar sem tilgreint var nafn
hans, aldur, ætt, þyngd og nokkur helztu mál, ásamt því
liver væri eigandi og hvaða viðurkenningu hrúturinn hefði
hlotið.
Gefinn var kostur á að sýna um 100 hrúta á sýningunni.
Mátti sýna úr hverri sveit hrútafjölda, sem svaraði til, að
einn hrútur væri fyrir hverjar 1000 til 1100 kindur í sveit-
inni. Beztu hrútar úr hverri sveit voru valdir af dómnefnd-
um á hrútasýningunum. Einnig var leyft að koma með ær-
hópa á sýninguna, 8 ær í hverjum, skyldu það vera systra-
hópar. Systrahópar þessir voru valdir i'ir hópum, sem sýndir
voru með afkvæmasýndum hrútum. 8 ærhópar voru valdir.
Ákveðið var að veita verðlaun á sýningunni. V7ar leitað
til ríkissjóðs um að leggja fram 10.000.00 kr. til verðlauna
á móti 5.000.00 kr. framlagi frá búnaðarsambandinu eða 2/3
verðlaunafjár eins og lög lieimila. Þetta framlag var veitt.
Styrkur vegna ferðakostnaður var veittur þeim, sem
lengst áttu að sækja á sýninguna, ákveðin upphæð á hverja
kind. Var nál. 5.000.00 kr. varið til þess.
Dr. Halldór Pálsson var fenginn til að vera dómnefndar-
maður á sýningunni, enn fremur þeir ráðunautarnir Bjarni
Arason og Leifur Kr. Jóhannesson.
Laugardaginn 19. okt. hófst svo sýningin eins og ráð var
fyrir gert, líklega stærsta sýning sinnar tegundar, sem haldin
hefur verið hér á landi. Komið var með 93 hrúta til sýning-
arinnar og 7 ærhópa. Komið var með allar kindur, sem
valdar höfðu verið til að mæta á sýningunni, nema hrúta rir
Loðmundarfjarðar-, Stöðvarfjarðar- og Helgustaðahreppi og
einn systrahóp, dætur Marðar á Brú á Jökuldal. Engar sýn-
ingar voru og því engir hrútar valdir í Skeggjastaða-, Mjóa-
fjarðar- eða Búlandshreppi.