Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Qupperneq 73
75
Þegar sýningin hafði verið sett og gestir boðnir velkomn-
ir, hófust ræðuhöld. Ræður héldu:
Steingrímur Steinþórsson, búnaðarmálastjóri, sem var
heiðursgestur á sýningunni, Páll Sigbjörnsson, héraðsráðu-
nautur, og dr. Halldór Pálsson, sauðfjárræktarráðunautur.
Hann fýsti dómum. Meðan hann talaði voru heiðursgripir
sýningarinnar leiddir fram, þrír beztu hrútarnir af hópnum
skreyttir silkiborðum með mismunandi litum eftir því hvar
í röðinni þeir voru, sömuleiðs voru leiddir fram þrír beztu
hrútarnir úr hverjum aldursfíokki, einnig skreyttir borðum.
Eftir dr. Halldóri héldu ræður Sveinn Jónsson bóndi á
Egilsstöðum og Jónas Pétursson, tilraunastjóri, Skriðu-
klaustri.
Þegar ræðuhöldunum lauk gengu sýningargestir um og
skoðuðu kindurnar, en það höfðu þeir einnig gert áður en
þau liófust. Virtust menn vera mjög áhugasamir við þetta.
Síðasti þáttur sýningarinnar var kjötsýning. Áætlað hafði
verið að einstakir fjáreigendur vefdu beztu kroppana af
sínu kjötinnleggi og sýndu, og yrðu svo veitt verðlaun fyrir
bezt gerðu kroppana, en frá þessu varð að hverfa vegna
örðugleika við framkvæmd á slíkri keppni. I þess stað voru
valdir kjötkroppar sem misjafnastir að gerð. Var lögð
áherzla á að fá saman jafn þunga kroppa en sem ólíkasta að
byggingarlagi. Dr. Halldór stjórnaði þessum þætti og sýndi
hann áhorfendum á eftirminnilegan hátt, hvaða áhrif vaxt-
arlag fjárins hefði á gæði kjötsins.
A sýningunni var mættur Stefán Aðalsteinsson, uftarsér-
fræðingur, tók hann ullarsýnishorn af öllum hrútum, sem
voru á sýningunni, í þeim tilgangi að gera á þeim nákvæma
rannsókn.
Að kjötsýnigunni lokinni voru verðlaun afhent og var
héraðssýningunni þar með lokið. Hafði allt gengið eftir
áætlun. Veður hafði verið gott á laugardaginn, en upp úr
hádegi á sunnudag gekk í slyddu, sem ágerðist eftir því sem
leið á daginn. Snjóaði í fjöll eins og áður segir, sem ekki