Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Qupperneq 82
84
Dómnefnd góðhesta skipuðu eftirtaldir menn:
Björn Gunnlaugsson, Bogi Eggertsson, Reykjavík, og
I'orsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri, Reyðarfirði.
Dómnefnd kynbótahrossa:
Gunnar Bjarnason, hrossarækarráðunautur, oddamaður
dómnefndar, ráðunatarnir Páll Sigbjörnsson og Leifur Kr.
Jóhannesson, Runólfur Jónsson, Litla-Sandfelli, og Sigfús
Jóhanesson, Vallaneshjáleigu.
A laugardaginn kl. 7 um kvöldið fóru fram kappreiðar á
skeiðvelli Hestamannafél. „Freyfaxa“ innan við Egilsstaði.
Keppt var í 300 m. stökki og tóku þátt í því 16 hestar, þar
af voru 3 úr Eyjafirði.
Keppni í skeiði gat ekki farið fram vegna ónógrar þátt-
töku.
Sunnudagurinn var aðaldagur mótsins og fór þá fram
samfelld dagskrá, sem hófst kl. 2 e. h.
Mótið var þá sett af formanni „Freyfaxa“ Pétri Jónssyni,
Egilsstöðum. Þá fluttu ávörp: Steinþór Gestsson. Hæli, for-
maður L. H. og Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri, vara-
formaður Búnaðarsambands Austurlands. Að þeim loknum
ávarpaði Gunnar Bjarnason, hrossaræktarráðunautur, sýn-
ingargesti og skýrði frá störfum dómnefndar kynbótahrossa.
Settur hafði verið upp dómhringur á sýningarstað og var
hrossunum raðað þar upp eftir röð í dómhring. Gunnar
Bjarnason lýsti hverju hrossi um leið og það var leitt fram
fyrir áhorfendur og því síðan riðið einn hring í dómhring.
Þannig höfðu sýningargestir gott tækifæri til þess að fylgjast
með hverju einstöku hrossi.
Á sýningunni voru sýndir 4 stóðhestar; þar af voru 3
tamdir og hlutu 2 af þeim 1. verðl. C. Voru það Lýsingur
frá Voðmúlastöðum, eign Hestamannafélagsins „Ereyfaxa“
og Vinur, eign Kristins Guðmundssonar, Hornafirði.
Faðir Lýsings er Lýsingur frá Butru, en móðir Nös frá
Voðmúlastöðum. Lýsingur hlaut 8.03 stig fyrir byggingu og