Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 84

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1958, Side 84
86 Glaðs, sem keyptur var sem kynbótahestur af „Freyfaxa". Hann var keyptur af Páli Sigurðssyni, Fornahvammi. Glað- ur dó fyrir aldur fram og er líklegt að þar hafi fallið gott efni. Hryssurnar tvær eru Brynja Sigfúsar í Vaflaneshjáleigu og Gletta Birnu í Beinárgerði. Skemmtilegra hefði verið, ef þessar hryssur hefðu verið orðnar nokkuð tamdar, því að flestar höfðu þær aldur til þess. Að lokinni dómlýsingu kynbótahrossa lýsti Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri, dómurn í góðhestakeppni og af- henti fyrir 3 beztu gæðingana verðlaun og skrautrituð skjöl. Verðlaun voru 500.00, 300.00 og 200.00 kr. Alls voru sýnd 18 hross á góðhestasýningunni. Bezti góðhesturinn var dæmdur Ljónslöpp, sú er var nr. 3 í röð tamdra hryssna af kynbótahryssunum. Umsögn dóm- nefndar um hana: Óvenjulega vel gert hross, sem gæðingur, en nýtur sín bezt á víðavangi. Svipmikil og tilkomumikil, vekur mikla eftirtekt og hrifningu með öllum sínum tilburðum, fótfimi og léttleiki framúrskarandi. Hálsinn langur og reisingin ákjósanleg, áseta góð, fjörið mikið og traust, gangrými hennar er mikið, en gangurinn fumkenndur og fæst ekki hreinn á stuttum spöl. Annar beztur var Rauður Friðriks á Þorvaldsstöðum og þriðji Sprækur Ingimars á Egilsstöðum. Þessu næst kynnti formaður „Freyfaxa" úrslit kappreið- anna, er frarn fóru kvöldið áður og afhenti unr leið verð- laun fyrir 3 fljótustu hestana, sem voru 500, 300 og 200 kr. Úrslit í 300 metra stökki urðu: 1. Jörp Jóh. Magnússonar, Breiðavaði, hljóp á 24.9 sek. 2. Rauður Ármanns Guðmundss., Gilsárt., hljóp á 24.9 sek. 3. Blesa Olafs Jónssonar, Urriðavatni, hljóp á 25.5 sek. 4. Roði Jóns Jóhannessonar, Möðrudal, hljóp á 25.9 sek. Jörp var sjónarmun á undan nr. 2. Jörp hafði áður í undanrásum hlaupið 300 m. á 23.9 sek.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.