Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1973, Page 8

Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1973, Page 8
8 LANDSBÓKASAFNIÐ 1972 Universitátsbibliothek, Kiel. - Universitetsforlaget, Oslo. - University Library, King’s College, Aberdeen. - University of California, Berkeley. - University of Leeds. - University of Manitoba, Winnipeg. - University of North Carolina, Chapel Hili. - University of Pittsburgh. - Upplýsinga- þjónusta Bandaríkjanna, Reykjavík. - Verlag V. Koerner, Baden-Baden. - J. S. Walker, Selkirk, Manitoba. - Dr. Ole Widding, Kpbenhavn. - Dr. Volker Wille, Oberstedten. - World Health Organization, Geneva. - Dr. George R. Wren, George State University. - ZBN-Verlag, Darmstadt. - Þjóðbókasafnið, Peking. - Þjóðbókasafnið, Pyongyang. HANDRITADEILD Handritakostur Landsbókasafns var í árslok 12. 510 skráð hand- rit. Grímur M. Helgason, forstöðumaður handritadeildar, og Nanna Ólafsdóttir, annar starfsmaður deildarinnar, unnu auk skráningar nýrra hand- rita að ýmislegri könnun safnsins. T. a. m. hefur verið kannað skipulega, hvaða hand- rit þarfnist viðgerðar, og er sýnt, að verkefnin eru þar geysimikil. Vinna að kvæðaskrá hefur legið niðri um hríð, en því verki þyrfti að ýta á flot aftur, því að erfitt verður um rannsókn og útgáfu kvæða margra höfunda frá fyrri tíð, meðan fullkomin skrá um kveðskap þeirra er ekki til. Páll Bjarnason cand. mag. vann um sumarið í ígripum að skráningu bréfasafna. Nú verður getið ýmissa handrita, er gefin voru Landsbókasafni á árinu: Ludvig Storr aðalræðismaður afhenti 19. júní, á afmælisdegi Jóhanns Sigurjónssonar skálds, öll ritverk hans ásamt handritum, bréfum og blaðaúrklippum, sem gefandi átti þá í fórum sínum, en hét jafnframt, að safnið fengi síðar það efni eftir Jóhann eða varð- andi hann, er honum kynni enn að áskotnast. Ludvig Storr hefur þannig breytt fyrri ákvörðun um, að umrætt efni yrði afhent eftir hans dag, svo sem fram kom í gjafabréfi gefanda, dagsettu á 50. ártíð skáldsins 30. ágúst 1969, en þá hófst í Landsbókasafni sýning á verkum Jóhanns og þá m. a. ýmsu úr hinni merku gjöf Ludvigs Storr (sbr. Arbók Landsbókasafns 1969). Halldór Laxness, Ragnar Jónsson og Ólafur Pálmason afhentu mikinn fjölda hand- rita og vélrita verka skáldsins, ennfremur sum verk þess í próförkum eða fyrri útgáf- um með eiginhandarbreytingum höfundarins. Landsbókasafn átti fyrir mikið safn margvíslegra handrita Halldórs Laxness og á von á meiru. Efnt var á sjötugsafmæli Halldórs, eins og síðar getur, til sýningar á verkum hans, og í Árbók safnsins 1971 var sem kunnugt er birt skrá Haralds Sigurðs- sonar bókavarðar um verk Halldórs Laxness á íslenzku og erlendum málum. Haraldur Ólafsson bankamaður í Reykjavík gaf sendibréf, dags. 13.7. 1761, frá Snorra Björnssyni presti á Húsafelli til Magnúsar Gíslasonar amtmanns og Finns Jónssonar biskups. Haraldur færði safninu einnig nokkur blöð og snepla, sem hann hafði hirt innan úr gömlum bókaspjöldum. Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjalavörður afhenti ýmis gögn, m. a. Rímur af barndómi Jesú Krists eftir sr. Guðmund Erlendsson í Felli, með hendi Jóns Davíðssonar 1866, og prófarkir af skáldsögu Indriða G. Þorsteinssonar Norðan við stríð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162

x

Árbók Landsbókasafns Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands
https://timarit.is/publication/279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.