Frjáls verslun - 01.02.1950, Blaðsíða 37
Bandaríkin.
Útflutningurinn í nóvember s.l.
nam að verðmæti 8.4 billj. dollara,
en það er lægsti útflutningur í einum
mánuði á árinu 1949, og 13,6 inillj.
dollurum minna en í október. Inn-
flutningurinn í mánuðinum óx hins
vegar um 31,6 millj. dollara frá því
í október og upp í 5.9 billj. dollara.
Gúmmínotkun Bandaríkjanna á
s.l. ári var 980 þús. tonn í saman-
burði við 1.069.000 tonn á árinu
1948.
Botany-verksm. í i\ew York hafa
tilkynnt, að þær hafi uppgötvað nýj-
an vefnað, sem samsettur er af ullar-
og nylonefnum. Kallast þetta nýja
efni „Botanyl“. Er.uppgötvun þessi
margra ára starf sérfræðinga og er
talið, að þetta nýja efni sameini
beztu kosti hvors efnis fyrir sig, ull-
ar og nylons. Efni þetta má nota
bæði í léttan vefnað svo og í skjól-
góðan utanyfirfatnað.
Á hinni árlegu sýningu banda-
ríska efnaiðnaðarins, er haldin var
í New York í des. s.l. komu fram
ýmsar stórmerkar nýjungar í iðnað-
inurn, sem munu án efa vekja mikla
athygli.
Þar kom m. a. fram ný gerð af
gerfi-vefnaði, sem framleiddur er úr
nýjum plastic-efnum. Voru sýndar
þar ábreiður, ýms fatnaður, þar á
meðal skyrtur og sokkar, úr þessu
nýja gerfiefni, sem er samtengjandi
trefjar og líkist mjög ull.
Þetta nýja gerfiefni er kallað
„Dynel“ og eru framleiðendur þess
Union Carbids and Carbon Corpora-
tion.
Fyrirtækið Barker & Co., Newark
sýndi þar rafgeyma, sem koma mun
mörgum að góðu gagni, því að full-
yrt er, að sellurnar eigi að endast
í 20—25 ár. Eru þær m. a. úr cadmi-
um og nikkel.
Ennfremur var skýrt frá því í
sambandi við sýningu þessa, að fund-
ið væri upp nýtt eldsnevti fyrir
þrýstihreyfla, sem vekja mun geysi-
lega athygli. Nákvæm lýsing er enn
ekki fyrir hendi á eldsneyti þessu,
en aðeins skýrt frá því, að hægt sé
Hannover
iðnsýningin 1950
Iðnsýningin í Hannover í Þýzka-
landi, sú fjórða í röðinni, verður í
ár haldin í tvennu lagi. Sýning létta-
iðnaðarins verður haldin dagana 29.
marz—2. apríl, en þunga-iðnaðar-
ins dagana 3.—14. maí.
Hannover-sýningin hefur orðið
umfangsmeiri með hverju árinu sem
líður og vakið sívaxandi athygli
meðal kaupsýslumanna um allan
lieim.
Árið 1947 sýndu 1298 framleið-
endur, eingöngu þýzkir, vörur sín-
ar á iðnsýningunni í Hannover, en
nú verða þeir um 3500 að tölu og
hvaðanæva úr Evrópu. Auk. Þýzka-
lands verða m. a. þátttakendur frá
eftirtöldum löndum: Sviss, Austur-
ríki, Frakklandi, Belgíu, Hollnndi,
Svíþjóð, Danmörku, Italíu, Júgó-
slavíu o. fl.
Tala sýningargesta á iðnsýning-
unni 1949 var yfir hálf milljón,
þar af voru um 4 þús. erlendir gest-
ir frá 52 löndum.
Þýzki iðnaðurinn er nú í örum
vexti, þrált fyrir margs konar tak-
markanir og hindranir af völdum
hernámsyfirvaldanna, og vörugæðin
eru ótvíræð.
Væri æskilegt, að sem flestir ís-
lenzkir kaupsýslumenn hefðu tök á
að kvnna sér iðnaðarvörur þær, sem
á sýningunni verða, þar sem hún er
talin mjög athyglisverð og margvís-
legar vörur á boðstólum.
Umboðsmaður sýningarinnar hér
á landi er Vilhjálmur Guðmunds-
son, Rauðarárstíg 42, Reykjavík.
að nota bæði aluminium- og magne-
siumduft sem eldsnevti fyrir þrýsti-
hreyfla. Frekari rannsóknir standa
nú yfir og er haldið leyndum, en
uppgötvun þessi þykir hin merkileg-
asta.
Sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjun-
um töpuðu næstum 15 millj. dollur-
um á árinu 1948, en það var fyrsta
raunverulega starfsárið Venjulegar
útvarpsstöðvar voru hins vegar rekn-
ar með hagnaði, en þó minnkaði sá
hagnaður um 10% miðað við næsta
ár á undan, sem aðallega stafar af
auknum kostnaði við reksturinn.
Kanada.
Landbúnaðarmálaráðherra lands-
ins hefur látið í ljós opinberlega
þá skoðun, að það væru ekki minnstu
möguleikar fyrir Breta að jafna
vöruskiptahalla landsins við Kana-
da á næstu 2 árum. „Bretland“, sagði
hann, „mun aldrei geta selt okkur
vörur fyrir jafnmikið verðmæti og
við seldum þeim á árinu 1949. Það
er algjörlega á móti öllum lögmál-
um að hugsa sér, að við, 13 millj.
þjóð, getum keypt eins mikið frá
Bretlandi, sem telur 50 millj. íbúa,
eins og þeir af okkur.“
ERLENDAR
VÖRUSÝNINGAR 1950.
Leipzig, Þýzkalandi G.—13. marz.
Vín, Austurríki 13.—20. marz.
Prag, Tékkóslóvakíu 13.—20.
marz.
Frankfurt, Þýzkalandi 19.—24.
marz.
Utrecht, Hollandi, 21.—30. marz.
Milano, ítalíu 12.—19. april.
Lyon, Frakklandi 15.—24. apríl.
Briissel, Belgíu 29. apríl—14. maí.
Poznan, PóIIandi 29. apríl—14.
maí.
Jönköbing, Svíþjóð 29. apri1—7.
mai. (Sýning sœnskra smáiðn-
aðarframleiðenda).
Hannover, Þýzkalandi 29. marz —
2. apríl og 3.—14. maí.
London, Birmingham, Brezka iðn-
sýningin, 8.—19. maí.
París, Frakklandi 13.—29. maí.
Toranto, Kanada 29. maí—9.
júní.
Göteborg, Svíþjóð 20.—29. maí.
FRJÁLSVERZLUN
37