Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 9
Hinn 22. febrúar sl. hélt dr. Jóhannes Nordal erindi um fríverzlunarmálið á fundi Verzlunarráðs Islands. Erindið var tekið á segulband með það fyrir augum, að það gæti birzt á prenti, ef ástæða þætti til. Frjáls Verzlun hefur fengið leyfi til að prenta erindið, að vísu örlítið stytt, þar sem viðhorf hafa breytzí, síðan það var flutt. Það er reyndar kunnugt af fréttum, að undanfarnar vikur hafa samningar um fríverzlunar- málið strandað í bili, en vonir standa þó til, að það verði tekið upp að nýju áður en langt líður. Má þá búast við, að ýmsar veigamiklar breytingar verði gerðar frá þeim tillögum, sem ræddar hafa verið til þessa. Engu að síður hljóta öll höfuðatriði málsins að vera svipuð og áður, sérstaklega þau vandamál, er varða þátttöku Islands. Ritstjóm Frjálsrar Verzlunar er á þeirri skoðun, að erindi þetta sé enn í fullu gildi, enda þótt nú séu níu mánuðir, síðan það var flutt. Dr. Jóhannes Nordal, hagfr.: FRÍVERZLUN EVRÓPU Fríverzlunartillögurnar eiga eins og flestar aðrar breytingar á þjóðfélagsháttum uppruna sinn annars vegar í fræðilegum kenningum og reynslu, en hins vegar í þeim straumi atburða- rásarinnar, sem aldrei verður skýrður og skilinn til fulls. Þær kenningar um hagkvæmni frjálsra viðskipta oggildi verkaskiptingar þjóða í millum, sem eru fræðilegur grundvöllur íríverzlunarhug- myndarinnar, hafa verið snar þáttur í kenning- um hagfræðinnar hátt á aðra öld. í heimi fram- kvæmda og stjórnmála hafa þær þó átt mjög misjöfnu gengi að fagna, t. d. dró mjög úr frjáls- um viðskiptum í heiminum eftir kreppuna 1929- 1932 og höft voru sett á á fjöldamörgum svið- um. Ahrif haftastefnunnar fyrir styrjöldina á við- skiptalíf heimsins og reynsla áranna fyrst eftir síðustu heimsstyrjöld hafa á ný aukið trú manna á, að frjáls verzlun á alþjóðavettvangi sé ein meginforsenda aukinna viðskipta og bættra lífs- kjara. Það hefur verið meginmarkmið alþjóðlegrar efnahagssamvinnu á árunum eftir styrjöldina að vinna að þessu marki, og ég held, að óhætt sé að segja að engin stofnun hafi unnið þar meira starf og árangursríkara heldur en Efnahagssam- vinnustofnun Evrópu (O.E.E.C.). Hún hefur komið á verulegu frelsi í gjaldeyrismálum álf- unnar, þar sem áður ríktu eingöngu tvíhliði gjaldeyrisviðskipti, með því að stofna Greiðslu- bandalag Evrópu (E.P.U.) og beita sér íyrir af- námi hafta innan efnahagssamvinnusvæðisins. Þó er vafalaust, að langt hefði liðið þangað til að því hefði komið, að Efnahagssamvinnustofn- unin réðist í að vinna að lækkun tolla eða afnámi hafta innan Evrópu, ef ekki hefðu rekið á eftir aðrir atburðir, það er að segja samvinna sex- veldanna um tollabandalag sín á milli. Tollabandalag Evrópu Þessi sex lönd, sem eru Frakkland, Ítalía, Þýzkaland, Holland, Belgía og Luxemburg, hafa stefnt að æ nánara samstarfi sín á milli síðan styrjöldinni lauk. Á stríðsárunum urðu öll þessi ríki að einhverju leyti að horfast í augu við al- gera niðurlægingu og ósigur, og að lokum urðu þau að venjast veröld, þar sem Evrópa virtist orðin máttvana, eða máttlítið afl í heimi stór- velda. Þetta hafði djúptæk áhrif á pólitíska hugsun þessara þjóða og efldi trú þeirra á nauð- syn þess að hafa samvinnu sín á milli, og þeirri skoðun hefur jafnvel vaxið stórlega fylgi, að fyrr eða síðar skuli komið á bandaríkjum Evrópu. Fyrsti ávöxtur þessarar stefnu í framkvæmd var stofnun stál- og kolasamsteypu Evrópu 1951, og fyrir tæpu ári undirrituðu svo stjórnir þess- ara landa samning um tollabandalag Evrópu, sem unnið hafði verið að þá um tveggja ára skeið. En með þeim samningi komu þau ekki eingöngu á tollabandalagi, heldur og víðtækri efnahagssamvinnu sín á milli. Ákvæði þessa samnings gengu formlega í gildi hinn 1. janúar síðastliðinn, en raunveruleg framkvæmd samn- ingsins hefst ekki fyrr en í byrjun næsta árs. Tollabandalagið eða hinn sameiginlegi mark- FRJÁLS VERZLUN 9

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.