Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 33
Nýir verzlunarstjórar
AFANGAR
Breytingar á framkvæmdastjorastöðuni
Nýlega hefur Útgerðarfélag
Akureyringa hf. ráðið Andrés
Pé.tursson, framkvæmdastjóra í
Revkjav., sem meðframkvæmda-
stjóra útgerðarfélagsins. Munu
])eir Andrés og Gísli Konráðs-
son veita félaginu forstöðu.
Andrés lætur nú af störfum scm
framkvæmdastjóri útgerðar Síld-
ar- og fiskimjölsverksmiðjunnar hf., en liann hefur
starfað við togaraútgerð í Revkjavík síðan 1047,
meðal annars hjá Tryggva Ófeigssyni og Skúla
Thorarensen.
Jónas Jónsson verður nú einn
framkvæmdastjóri við útgerð
Síldar- og fiskimjölsverksmiðj-
unnar. Jónas var framkvæmda-
stjóri Síldarverksmiðjunnar á
Seyðisfirði frá 1942 til 1955, en
fluttist árið 1953 til Reykjavíkur
og gerðist þá framkvæmdastjóri
við Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjuna hf., og gegndi jafnframt framkvæmda-
stjórastöðunni á Seyðisfirði til ársins 1055, eins og
fyrr segir.
Nýlega hefur Helgi Sigurðsson
úrsmiður opnað verzlun með úr
og skartgripi í Vesturveri við
Aðalstræti.
Helgi er fæddur árið 1034 í
Reykjavík. Hann lærði úrsmíði
hjá firmanu Jóhannes Norðfjörð
hf. og starfaði þar í tvö ár eftir
að námi lauk.
Helgi hefur undanfarin ár verið meðal þekktustu
sundmanna landsins.
lunsteinn Kristinsson hefur
verið ráðinn verzlunarstjóri fyr-
ir Jónskjör hf., sem opnað var
nýlega að Sólheimum 35,
Reykjavík.
Þorsteinn er fæddur árið 1932
á Reyðarfirði. Hann vann áður
við verzlunarstörf hjá föður sín-
um, Kristni Magnússyni, á
Reyðarfirði.
Orðsending til lesenda:
Þátturinn ÁPANGAR getur því aðeins orðið
fjölbreyttur, að lesendur blaðsins aðstoði við efnis-
söfnun. Ábendingar og greinar í þennan þátt ósk-
ast sendar í pósthólf 1103.
verði fyrir þeim hættum, sem þessar sífelldu bráða-
birgðaaðgerðir liafa í för með sér fyrir þróun efna-
hagslífsins í landinu. Þcssar hættur voru mönnum
orðnar talsvert ljósar á árunum 1948—50. Það var
eitt af því, sem gerði gengislækkunina ])á mögu-
lega. Mönnum var aftur farið að verða þetta nokk-
uð ljóst áður en ráðstafanirnar voru gerðar á s.l.
vori. En þetta gleymist furðu fljótt aftur og ])egar
vandamálin knýja á að nýju, er freistingin mikil
að velja þá leið, sem auðveldust. er í bili. Þó að ekki
verði komizt hjá því að gera cnn einu sinni bráða-
birgðaráðstafanir, er það þó þýðingarmikið, að þær
ráðstafanir stefni fram á við til heilbrigðara efna-
hagslífs, en séu ekki spor aftur á bak.
Þá hefi ég lokið við ársskýrsluna og ég heyri að þið eruð undr-
andi yfir framförunum
FIiJÁLS VERZLUN
33