Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 15
staðinn. Ég sezt í sandinn meðan ég athafna mig', set stöngina saman, festi á hana hjólið, þræði lín- una, hnýti spóninn á girnið, fæ mér að reykja. Ég er einn og þarf ekki að flýta mér. Ekkert kallar að lengur, því ég er þangað kominn sem gott er að hafast við. Árstraumurinn er fjörlegur og bylgju- fallið í meira lagi núna, því að vindinn hefur ckki lægt, vindinn lægir ekki fyrr en kvöldar, á háflæð- inu rétt fyrir lágnættið verður sennilega logn. Nú eru tæki mín komin í lag, ég rís upp og sveifla veiðistönginni, læt hana fjaðra, hún er næm eins og hún væri hluti af líkama mínum, sjálf afl- taug minnar hægri handar. Síðan kasta ég, það þýtur notalega í hjólinu meðan línan flýgur út, unz spónninn fellur í vatnið og ég tek að draga inn á ný. Ég kasta um stund án þess að verða var, loks tek ég spóninn af girninu og set öngul í staðinn, beiti maðki á öngulinn og kasta aftur. En ég veiði heldur ekki neitt á maðkinn, ekki að svo stöddu, heldur dreg agnið sífellt inn óhreyft. Það er ekki að marka, aðfallsins gætir svo lítið enn, fiskur- inn gefur sig oft ekki fyrr en hálffallið er að. Nei, það er ekki alltaf mikil veiði, en fleira getur við borið, ýmislegt getur fyrir komið þó ekki sé veiði. Þarna kemur til dæmis upp selur, hann horfir á mig utan af álnum, treður marvaðinn og mænir til mín, eins og honum liggi eitthvað sér- stakt á hjarta, sé með skilaboð til mín úr djúpinu, en treysti sér ekki til að afhenda þau, annar kem- ur upp við hlið hans og þeir horfa báðir á mig um stund, hrevfingarlausir, með óhugnanlegri athygli. En þegar sá þriðji kemur upp milli hinna tveggja og ber sig eins að, þá finnst mér nóg komið og ég beini að þeim öflugu kasti, sem hefur þau áhrif að þeir stinga sér allir þrír með tilþrifamiklu busli, svo jökulvatnið sýður og strókar sig. Ég hef þá trú að sjóbirtingsgangan sé ekki langt undan, þó ég hafi enn ekki orðið hennar var: þar sem selurinn er, þar er að jafnaði eitthvað fleira á ferð. Auk þess sé ég þétt kríuger hér skammt úti í leirnum og það færist nær ósnum eftir því sem aðfallið stígur, og á fárra mínútna fresti þjóta fram hjá mér smáflokkar af straumönd og æðarfugli, allir í sömu átt, utan af hafi, andstreymis. Þetta er góður fyrirboði: meðan áin er fisklaus er fuglinn þar ekki lieldur. Ég kasta enn. Línan þýtur út af hjólinu og ég horfi á hvernig hún vinzt ofan af því með hraða. Þangað til ég tek eftir því að hún rekst út með óeðlilegum hraða og lengur en líkindi eru til. Er fiskur á? Um leið og ég felli hemilinn á hjólið flýgur mér í hug: „Er fiskur kominn á?“ Nei, það er fugl, stór og virðulegur æðarbliki, hann hefur flogið á línuna og flækt henni utan um annan væng sinn, — nú fellur hann í vatnið og brýzt um. En þetta er ekki sú veiði sem ég sælist eftir, ég vil fisk en ekki fugl, eftir drjúga stund og töluverða áreynslu tekst mér að losna við æðarblikann og renna á ný fyrir sjóbirting. Rétt á eftir fékk ég tvo fiska, en síðan ekki meir Framh. á bls. 36 FRJÁLS VERZLUN 15

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.