Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 25
hann hafði árið 1981, þegar hann var 3 vetra
skóli. Að vísu hefir skólahúsið verið endurbætt
mikið á þessu tímabili og hver kimi hússins
tekinn til kennslunota. Síðast var þakinu lyft
og búnar til tvær skólastofur í risinu. Hins vegar
heíir vöxtur skólans verið mun meiri, en það
gefur til kynna að hann hefir stækkað upp í
sex vetra skóla. Jafnframt því hefir deildum
í hverjum bekk fjölgað þannig, að nú eru allir
bekkir verzlunardeildarinnar þrískiptir. Það er
augljóst, að slíkt álag á það húsnæði, sem
fyrir hendi er, hlýtur að valda því, að ekki er
hægt að fullnægja þeim kröfum, sem nemendur
hljóta óhjákvæmilega að gera, til þess að þeir
geti haft eðlilega félagsstarfsemi. Auk þess
hljóta ýmsir þættir skólastarfsins sjálfs að verða
erfiðir í framkvæmd og jafnvel útilokaðir vegna
húsnæðisskortsins. Má benda á það sem dæmi,
að hvergi er hægt að kalla saman alla nemend-
ur í skólanum í einu. Ennfremur háir húsnæðis-
leysið allri eðlilegri þróun hans að öðru leyti.
Ekki er hægt að taka í skólann nema lítinn
hluta þeirra unglinga, sem sækja um skólavist.
Aðsóknin að skólanum fer stöðugt vaxandi.
Undanfarið hafa um tvö hundruð unglingar
gengið þar undir inntökupróf árlega, s.l. vor um
tvö hundruð og tuttugu, en ekki er hægt að
taka nema ‘60—70 nýja nemendur í skólann á
ári.
Fyrir um það bil tíu árum var farið að ræða
um nauðsyn þess að byggja nýtt skólahús.
Bæjarstjórn úthlutaði þá skólanum lóð vestur
á melum, við Hagatorg. A síðastliðnu ári var
þeirri lóð afsalað af hálfu skólans gegn því að
lóð fengist í staðinn á Háaleiti, enda mun þar
fást mun betra landrými fyrir skólann. Enda
þótt þannig hafi verið unnið að undirbúningi
að því, að skólinn fái í framtíðinni nýtt hús
með nægilega stórri lóð til starfsemi sinnar,
er þó langt í land, að því takmarki verði náð.
Hins vegar er þörfin fvrir aukið húsnæði orðin
það brýn, að jafnframt hefir verið unnið að því
að koma upp viðbótarhúsnæði við Þingholts-
stræti, sem hægt væri að nota ásamt gamla
skólahúsinu. Viðbótarlóð var keypt við Grund-
arstíginn fyrir nokkrum árum, og teiknað hefir
verið skólahús á lóðinni við Þingholtsstræti.
Árið 1955 var sótt um íjárfestingarleyfi fyrir
skólabyggingu við Þingholtsstræti, en leyfi
fékkst fyrst í sumar fyrir byrjunarframkvæmd-
Hið iyrírhuqaða skólahús við Þingholtsstræti
FRJÁLS VERZLUN
35