Frjáls verslun - 01.12.1958, Blaðsíða 48
Tóli km jarðgöng gegnum Mont Blanc
í október sl. var hafizt handa um að grafa jarð-
göng í gegnum Mont Blanc. Verða þau 12 km
löng og því lengstu jarðgöng í heimi, sem ætluð
eru til bifreiðaumferðar. Frakkland og Ítalía standa
að þessu mikla mannvirki og Sviss mun aðstoða
með lánveitingum. Þegar framkvæmdum er lokið,
eftir 3—4 ár, verður svo til beinn vegur milli Par-
ísar og Rómaborgar um Genf í Sviss, sem opinn
verður allt árið. En snjókoma hamlar oft umferð
um skörðin í Alpafjöllunum á vetrum, eins og
kunnugt er. Með þessu móti styttist Ieiðin milli
Parísar og Rómar um 200 km, borið saman við
leiðina um Nice, sem aðallega hefur verið farin.
Yfir 30 ár eru liðin síðan fyrst var farið að tala
um þessi jarðgöng, en framkvæmdir voru ekki
endanlega ákveðnar fyrr en 1957. Ymislegt tafði
málið áður, en þó einkum peningaskortur. Síðari
árin hefur aðstaðan breytzt verulega; auðveldara
er nú að gera jarðgöng en áður var og bílaumferð
milli Frakklands og Italíu hefur aukizt stórlega.
Jarðgöngin verða í um 1300 m hæð yfir sjávar-
mál og er því allmikill bratti að opunum, einkum
Frakklandsmegin. Tvær 3 m breiðar akbrautir
verða í göngunum og auk þess gangbraut. Full-
komið loftræsingarkerfi verður sett upp, bæði til
að lækka hitastigið, sem annars yrði illþolandi, og
einnig til að draga út kolsýruloftið, sem kemur frá
bílvélunum.
Þessu mannvirki verður stjórnað af fransk-
ítölsku fyrirtæki, sem gert hefur 70 ára sanming
við viðkomandi stjórnarvöld. Tekið verður gjald
af öllum bíium, sem fara um göngin, og er búizt
við að tekjurnar verði svo miklar, að fyrirtækið
geti borið sig fjárhagslega.
★ ★ ★
„Góðann daginn Iæknir“, sagði gamall bóndi
um leið og hann ýtti slánalegum unglingi á undan
sér inn uin dyrnar hjá þorpslækninum. „Mig langar
til að biðja yður að líta aðeins á tengdason minn.
Ég skaut. i löppina á honum í gær og nú er eins og
liann sé dálítið haltur“.
„Hvernig datt yður í hug að skjóta á yðar eigin
tengdason“, spurði læknirinn álasandi.
„Jú, sjáið þér nú til læknir“, svaraði gamli maður-
inn, „hann var nú ekki tengdasonur minn þegar
ég skaut á hann“.
★
Hin fullkomna húsmóðir verður að vera hátt-
prúð og geta sýnt snarræði. Það sýndi kona nokk-
ur kínversk í Hong Kong, sem hafði boðið Banda-
ríkjamönnum til hádegisverðar og lofað þeim kalk-
ún, sem er uppáhaldsréttur þeirra.
Um leið og þjónninn kom inn í borðstofuna
hrasaði hann um þröskuldinn og hinn lostæti fugl
kastaðist af fatinu og á gólfið.
„Þetta gerir ekkert til“, sagði húsmóðirin rólega
og vingjarnlega. „Farið með þennan aftur fram í
eldhús og náið í hinn og komið með hann inn“.
48
FHJÁLS VERZLUN