Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Side 26

Frjáls verslun - 01.12.1958, Side 26
um, að upphæð 300.000.00 kr. Fyrsti áfanginn í byggingarmálunum verður tvær hæðir og kjall- ari, en allt húsið er fyrirhugað fjórar hæðir. I kjallara nýja skólahússins verður fatahengi og veitingasalur, sem verður til afnota fyrir nemendur við samkomur í skólanum og enn- fremur til daglegra afnota fyrir þá, sem hafa með sér mat í skólann. Ennfremur verða geymsl- ur o. fl. í kjallara. A fvrstu ha'ð verður sam- komusalur skólans. Samkomusalurinn mun bæta úr verstu vandræðunum í rekstri skólans. Auk þess að leysa mikinn vanda í sambandi við samkomuhald í skólastarfseminni og félagsstarf- semi nemenda, þá kemur salurinn að miklum notum til kennslu. Aðstaða skapast til þess að nota kvikmyndir og skuggamyndir við kennsl- una, en það tíðkast mikið nú orðið. Ennfremur verður í ýmsum tilfellum hægt að nota hag- kvæmari kennsluaðferðir, eins og með fyrirlestr- um o. s. frv. A annarri hæð skólans verða fjórar stórar kennslustofur. Þegar lokið er byggingu framangreinds hluta hins nýja skólahúss, ættu skilvrði að vera fyrir hendi til að reka skólann á eðlilegan hátt, auk þess sem hann ætti þá að geta rúmað allt að 100 fleiri nemendur en nú er. Atak það, sem framundan er í húsnæðismál- um Verzlunarskólans, kemur til með að kosta mikið fé. Skólinn á hins vegar litla sjóði upp í það, sem gera þarf, og verður því að treysta á fjárframlög, ef takast á að skapa honum lífvæn- leg starfsskilyrði í framtíðinni. Skólanefnd og skólastjóri vinna nú að fjáröflun til byggingar- framkvæmdanna, og er þess vænzt að vinir og velunnarar skólans sýni hug sinn til hans með f j ár f r amlögum. Skólanefndin er nú skipuð þessum mönnum: Magnús J. Brynjólfsson, kaupm., Þorvarður J. Júlíusson, framkv.stj., Gunnar Asgeirsson, stórkaupm., Gunnar Magnússon, bókari og Jó- hann Ragnarsson, stud. jur. Skólastjóri er dr. Jón Gíslason. Nokkrir lögregluþjónar tóku fasta þrjá menn, sem árangurslaust höfðu reynt að þvinga banka- stjóra í litlum amerískum bæ til að láta af hendi 60.000 dollara. Þegar ræningjarnir voru spurðir hvers vegna þeir hefðu einmitt tiltekið þessa upp- hæð, sögu þeir: „Það var af því, að það stóð með stórum stöfum í glugganum: „Varasjóður 60.000 dollarar“ “. SKARÐ FYRIR SKILDI ÓLAFUR JOHNSON Hinn 9. nóvember síðast liðinn lézt Ólafur Johnson stórkaupmaður hér í Reykjavík eftir langvarandi veikindi. Flestum lesendum Frjálsrar Verzlunar mun kunnugt um hinn langa og farsæla feril Ólafs í verzlunarmálum Islendinga. Hann stofnaði O. Johnson & Kaaber ásamt Ludvig Kaaber og varð fyrirtæki þeirra fljótlega eitt umsvifamesta innflutningsfyrirtæki hérlendis og hefur haldið þeim sess síðan. Auk starfanna við fyrirtæki sitt gegndi Ólafur mörgum trúnaðarstörfum á opinberum vett- vangi, sem konsúll, fulltrúi þjóðar sinnar við vöruinnkaup á styrjaldarárunum, og í samtök- um stéttarbræðra sinna. Yrði það of langt mál að rekja starfssögu Ólafs hér, en því efni verður vafalaust gerð góð skil af öðrum síðar, því ævi- starf hans var snar þáttur í þróun og framförum íslenzku verzlunarinnar á fyrri hluta 20. aldari- innar. Verzlunarstéttin hefur misst einn sinna merk- ustu brautryðjenda, en þjóðin öll sér að baki einum bezta sona sinna. 26 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.