Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Page 32

Frjáls verslun - 01.12.1958, Page 32
hverja vertíð, og sVo reynt að gera einhverjar ráð- stafanir til þess að standa við það samkomulag. Þetta myndi verða ómögulegt undir hinum nýju kringumstæðum, vegna þess að enginn fastur grund- völlur vœri fyrir hendi til að byggja samningana á. Ég býst við því, að afleiðingin yrði sú, að taka yrði upp frjálst gengi og láta gengisskráninguna hækka jafnt og þétt, eftir því seni verðlag og kaup- gjald hækkaði innanlands. Þetta mundi aftur gera verðbólguþróunina enn örari. Samningarnir við bændur um verðlagsgrundvöll landbúnaðarafurða yrðu óframkvæmanlegar af sömu ástæðu. Líklega yrði }>á að láta landbúnaðarvörur hækka með vísi- tölu kauplags jafnt og þétt. Þetta mundi setja enn meiri snúning á verðbólguspóluna. Ég minntist á það áðan, hvernig sparnaður sá, sem bankarnir geta ráðið yfir, hefur dregizt saman á undanförnum árum og liversu alvarlegar afleið- ingar það hefði haft. Or verðbólga myndi leiða til enn meiri minnkunar þessa sparnaðar. Nú eru menn hræddir við að eiga peninga í nokkur ár, en í örri verðbólgu myndu menn verða hræddir við að eiga peninga í nokkra mánuði, eða jafnvel nokkr- ar vikur, og reyna að koma þeim öllum fyrir í byggingum, í hlutum af einhverju tagi, eða }>á bara eyða þeim, ef ekki væri annað hægt, í skemmt- anir eða þvíumlíkt. Þetta mundi enn auka snún- inginn á verðbólguhjólinu mikið, og skapa aukin vandræði við heilbrigða fjárútvegun í nauðsynleg- ar framkvæmdir. Þetta viðhorf, sem ég hér licfi lýst, er svo óglæsi- legt, að ég held að enginn stjórnmálamaður myndi vilja taka þennan kost. En við verðum að athuga það, að til þess að koma í veg fyrir, að út á þessa braut sé lagt, verður að hefjast handa fljótt, því að kauphækkunin, sem kom 1. desember, hlýtur að komast inn i verðlagið ef hún er ekki látin ganga til baka alveg á næstunni. A að dulbúa verðbólguna? Hinn möguleikinn er dulbúin verðbólga. Þá myndi reynt að stöðva víxlhækkanir kaupgjalds og verðlags með niðurgreiðslum, án þess að gcra á sama tíma við- hlítandi ráðstafanir til þess að afla fjár til þeirra. Útflutningsatvinnuvegunum myndu verða bættar upp kauphækkanirnar að einhverju leyti, en of lítils fjár aflað til að standa straum af þeim uppbótum. Af þessu myndi ekki leiða þær öru kaup- og verð- hækkanir, sem ég var að lýsa áðan, en aftur á móti hallarekstur bæði hjá ríki, útflutningssjóði og út- flutningsatvinnuvegunum. Þann hallarekstur yrðu 32 bankarnir að bera með auknum útlánum, er síðan sköpuðu sívaxandi gjaldeyris- og vöruskort. Slík þróun myndi verða svipuð og hér var á árunum 1!)48—50. Við þessar kringumstæður myndu þær lagfæringar á bótakerfinu og leiðréttingar á mis- ræmi í verðlagi, sem gerðar voru á s.l. vori fljót- lega vera úr sögunni. Til }>ess að spara útgjöld sem mest, myndi aftur verða byrjað að skammta hverri grein útflutningsins það minnsta, sem hún kæmist af með, og þess freistað að halda niðri verði á þýðingarmestu neyzlu- og rekstrarvörum. Slíkt ástand myndi ekki geta staðið lcngi, og myndi gera róttækar aðgerðir óumflýjanlegar eftir dálít- inn tíma. Hættan væri svo sú, að áður en þær að- gerðir kæmu til framkvæmda, hefði þetta ástand þcgar haft mjög skaðleg áhrif á alla þróun atvinnu- lífsins í landinu. Hvað verður gert? Um það leyti sem efnahagsráðstafanirnar voru í undirbúningi á s.l. vori, mætti ég kunningja min- um á götu. Hann sagðist vita, hvernig þessar ráð- stafanir yrðu. „Ég var að lesa það í bók“, bætti hann við, „bók, sem að vísu er frá 1911, cn er jafnáreiðan- leg fyrir því“. Bókin var „Át Hácklefjáll“ eftir Albert Engström. Þar segir Engström frá því, að þegar hann og fylgdarmaður hans, Stefán að nafni, hafi verið á leið til Heklu, hafi reiðtygin á hesti Engströms bilað og hnakkurinn snarazt af. Svo segir Engström: „Stefán tók hnakkinn og gerði við hann til bráðabirgða, eins og íslendingar gera alltaf.“ Ég er hræddur um, að Albert Engström muni enn reynast sannspár, og sú ríkisstjórn, sem nú taki við, hver sem hún verður, muni enn reyna að komast hjá því að taka málin föstum tökum og gera þær alhliða ráðstafanir, sem einar gætu kom- ið að verulegu haldi. En því eru takmörk sett, hve lengi er hægt að gera við reiðtygin til bráðabirgða. Okkur hefur tckizt þetta furðaidega fram að þessu, vegna þess að við höfum getað notað mikið crlent fé öll árin síðan stríðinu lauk. Það má segja, að við höfum að nokkru veitt verðbólgunni út úr landinu, fyrst með því að nota upp gjaldeyrisinn- stæðurnar, er safnazt höfðu í stríðinu, síðan með Marshallaðstoðinni, og nú á seinustu árum með mikilli notkun erlendra lána til langs og skamms tíma. Möguleikarnir til að halda þessu áfram verða þó æ takmarkaðri. Ég held einnig, að ástæða sé til að vera vel á FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.