Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1958, Side 47

Frjáls verslun - 01.12.1958, Side 47
Þorlákur hafði brennandi áhuga á því, að komið væri á fót verzlunarskóla. Gerir hann fyrst grein fyrir því hugðarefni sínu í „Mínir vinir“, og í vöru- skrá sinni 1890 ritar hann enn um verzlunarskóla og nauðsyn hans. En í þessu efni sem mörgum öðrum niátti Þorlákur berjast við skilningsleysi og áliugaskort. Honum lánaðist þó að stofna slíkan skóla með því að leggja honum sjálfur til ókeypis húsnæði og kenna allmikið við hann án þess að taka gjald fyrir. En jafnskjótt og Þorlák brast heilsu lagðist skólinn niður, þar sem aðra skorti framtak og vilja til þess að styðja að framhaldi hans. Mun honum hafa fallið það þungt, því að hann hafði sýnt þessum fyrsta vísi að verzlunarmenntun á íslandi mikla fórnfýsi og ósérplægni. — Talið er, að hugmyndin að stofnun Verzlunarmannafélags Reykjavíkur sér runnin frá Þorláki og hann hafi átt ódeildan þátt í því, að það var stofnað. Þótt hér hafi verið farið fljótt yfir sögu, ætti að vcra ljóst, að Þorlákur var merkilegur tímamóta- maður. Hann sá lengra fram og víðar uni en flestir samtíðarmenn hans og átti því erfitt með að fá þá til samfylgdar. Þess vegna varð hann í mörgu efni að láta sér nægja að hreyfa nýstárlegum hugmynd- um og benda á veigamikil verkefni. Það sýnir hins vegar glöggskyggni Þorláks og framsýni, að nálega allt , sem fólst i boðskap lians til landsmanna, hefur fyrir löngu hlotið áheyrslu og orðið í framkvæmd að veigamiklum þátturn í þjóðlífi íslendinga. — Jón Sigurðsson vissi að sjálfsögðu hvað hann gerði, þá er hann kaus Þorláki vist á Englandi, en það má telja fullkomið efunarmál, að honum hafi nokk- urn tíma boðið í grun, að jafnmargir þræðir ættu eftir að liggja til Þorláks viðvíkjandi þróun frjálsrar verzlunar á íslandi eins og síðar varð Ijóst. Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi Meðan Þorlákur var á Englandi, notaði hann bréfmerki, þar sem í voru greipt orðin: „Ber er hver að baki, nema sér bróður eigi.“ Honum var alla tíð kær einlæg og óspillt bræðralagshugsjón, er lýsti sér berlega í allri framkomu hans. — Þegar Þorlákur varð óstarfhæfur vegna heilsubrests, kom greinilega í ljós, að honum var mikill og traustur stuðningur búinn af konu sinni, en á það hafði að vísu reynt fyrr. í júnímánuði 1876 hafði hann kvænzt Ingibjörgu, dóttur hinna kunnu Esjubergs- hjóna, Kristínar Bjarnadóttur og Bjarna Bjarna- sonar. Ingibjörg var ekki einungis fríð kona og glæsileg, með henni bjó einnig óvenjumikill kjark- ur og manndómur. Nú kom í hennar lilut að sjá farborða barnmörgu heimili og stunda bónda sinn sjúkan. Hana brást ekki hugkvæmni til að leita fanga og fylgdi á eftir af elju og fyrirhyggju. Iíenni varð þa.ð fyrst fyrir að kaupa sér prjónavél og hóf nú að prjóna af kappi fyrir bæjarbúa. Naut hún í því tilstyrks barna sinna, einkurn dætranna. Síðan fór liún að flytja inn silkiefni frá Sviss og Þýzka- landi og sníða niður í kvenslifsi. Seldi hún slifsi þessi, sem voru með áhnýttu silkikögri, í dagstof- unni heiina hjá sér. Þessi litli vísir að kaupmennsku dafnaði svo vel í höndum heniiar, að af varð mynd- arleg verzlun fyrr en varði. Var hún við liana kennd og nefnd: Verzlun Ingibjargar Johnson. Er verzlun þessi, sem er ein elzta og þekktasta verzlun bæjarins, enn starfrækt, og til húsa í Lækjargötu 4, þar sem til hennar hafði verið stofnað í öndverðu. Ingibjörg kom öllum börnum sínum frábærlega vel til manns. Dætur henuar allar sigldu til Danmerk- ur og menntuðust þar, en synir hennar báðir stund- uðu nám í Latínuskólanum, og varð annar þeirra lögfræðingur. Þegar Ingibjörg féll frá (1920), átti hún húseignina Lækjargötu 4 skuldlausa, auk þess mikla búslóð og vörubirgðir, er voru með innkaups- verði metiiar á fimmtíu og fimm þúsund krónur. Glöggt má marka á því, sem nú liefur verið sagt, að Ingibjörgu Johnson tókst ekki aðeins að sjá heimili sínu vel og farsællega farborða, heldur lán- aðist henni jafnframt að koma verzlunarfyrirtæki sínu á fjárhagslega traustan grundvöll. Ingibjörgu og Þorláki var það báðum sameigiulegt að mega ekkert aumt sjá án þess að vilja úr bæta. lleyndist Ingibjörg alla tíð liin mesta greiðakona og létti mörguin baggaburð í stríði lífsins. Þorlákur fékk að vísu heilsu á ný, en svo hafði starfsþrek hans lamazt, að hann varð ekki fær til vinnu aftur. Hann andaðist í lteykjavík 25. júní 1917. Börn Þorláks og Ingibjargar voru: Sigríður, er fyrst átti Ólaf Hauk Benediktsson, en síðar dr. Einar Arnórsson hæstaréttardómara, Bjarni liæsta- réttarmálaflutningsmaður (d. 25. júní 1935), Kristín (d. 2. des. 1957) kona Vilhelms Bernhöfts tannlækn- is, Ólafur stórkaupmaður, fyrst kvæntur Helgu Pétursdóttur Thorsteinsson og síðar Guðrúnu Arna- dóttur frá Geitaskarði, og Áslaug (d. 23. nóv. 1925) kona Sigfúsar Blöndals aðalkonsúls. Á einum vörulista Þorláks Ó. Johnson stóð sem fyrirsögn: ,,Meira. frelsi, meiri þeklcing, meiri dugn- aður.“ Svo lengi sem kraftar leyfðu barðist hann þrotlaust fyrir því, að þjóð hans mætti tileinka sér þessar eigindir í sem ríkustum mæli. Þótt hon- um væri kippt úr leik rösklega miðaldra, hafði honum þó tekizt að afkasta svo miklu og eftir- minnilegu starfi, að sagan mun tvímælalaust skipa honurn á bekk með öndvegismönnum íslenzkum á síðari hluta 19. aldar. FRJÁLS VEUZLUN 47

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.