Frjáls verslun - 01.02.1961, Qupperneq 18
Úr tízkuverzlun
einnig gegnum Keflavík, Garð og Sandgerði til
Stafness. Segja má með sanni, að bæir þessir séu
„ í þjóðbraut", því að vegurinn er fjölfarnasti þjóð-
vegur landsins. Á seinni árum hafa Njarðvíkur —
sérstaklega þær ytri — stækkað mjög ört. Ný hús
hafa risið þar upp og götur verið lagðar langs og
þvers yfir Þórukotstún. Borg, Vellir og Höskuldar-
kot eru að týnast milli nýju húsanna, þó að gamla
Höskuldarkot standi ennþá upp úr, enda var það
háhýsi á sínum æskuárum. — Njarðvíkingar eru
stoltir af byggð sinni, fornri frægð og framtíðar-
vonum, alveg eins og Keflvíkingar eru stoltir af
sínum bæ. Innan tíðar mætast byggðirnar við
landamærin — sem eru aðeins landamæri lögsögu
og skatta — og þá mun báðum skiljast, að margar
hendur vinna létt verk.
Það er eins með Keflavík og marga aðra staði,
að nafnið eitt vekur sérstök hughrif, stundum
bundin einhverjum minningum, fréttum eða sögu-
sögnum, eða að kliður nafnsins einn verkar þægi-
lega eða óþægilega. Keflavík er í margra huga
draslstaður, frámunalega ljótur, umhverfislaus —
og veðrið sífelldur norðan-garri. Sumir halda, að
allt í Keflavík sé sokkið í útlent „ástand“ — laus-
læti mikið og svall.
En svo er Keflavík, þegar til kemur, bara þokka-
legur bær, fimmti stærsti bær á landinu, miðað
við fólksfjölda. Þar ber mest á ungu fólki, því að
bærinn er í örum vexti. — Vítt um kring er eitt
fegursta útsýni, er getur — og í birtingu skamm-
degisins loga suðurfjöllin i sólareldi. Þá er Keilirinn
blár, og þá er Esjan allt litrófið, en Snæfellsjökull
hvítur, hinum megin við hafið. Undiraldan gnauðar
við klettana og reynir árangurslaust að hreinsa
ruslið úr fjörunni. í Keflavík eru hús og götur, ið-
andi af umferð og lífi. Skipin, stór og smá, koma
og fara. Þungur kliður bíla með hlöss af fiski, eða
einhverju öðru, berst um göturnar. „Peningalyktin“
úr fiskmjölsverksmiðjunni lcggst stundum yfir bæ-
inn, sumum til angurs, en öðrum til marks um iðju
og starf.
Keflavík ber nokkur merki fyrstu vordaga. Þar
ægir saman gömlu og nýju. Nýtízku steinhús rísa
hjá gömlum bárujárnshúsum, eins og nýgræðingur
meðal fölnaðra stráa. Ekki hefur unnizt tími til að
snyrta kringum nýbyggingar sem skvldi, götur eru
holóttar og gangstéttir fáar, en þó lcngjast malbik-
aðar götur, og gangstéttir læðast áfram með hverju
ári sem líður. Malbikaðar götur cru nú alls 2*4
km á lengd, og vonir standa til,
að meira verið malbikað áður en
langt um líður. Skrúðgörðum við
húsin fjölgar ört — blómin
stækka og hríslurnar hækka. Al-
menningsskrúðgarður er í fæðingu,
og á hann að verða minninga- og
minjagarður. Fyrsta minnismerkið
er þegar risið þar — minnismerki
um lýðveldisstofnunina 1944. Við
annan cnda þessa gai'ðs er sjúkra-
húsið, sem nú á að fara að stækka,
en við hipn endann mun rísa ráð-
hús, með byggðasafni, bókasafni
og hátíða- og sýningasal. Þar
verða og allar opinberar skrifstof-
Nýiu húsin vlð Hringbraut
18
FRJÁLS VERZLUN