Frjáls verslun - 01.02.1961, Side 35
gluggar (niðri), annar fyrir búrið,
en hinn fyrir eldhúsið.
Við bakhlið hússins mætti hafa
skúr, 8% al. á lengd, og 4—5 álna
breiðan eptir atvikum, með halla-
litlu þaki; nóg að útveggurinn sje
cinu kvartili lægri en hinn sem að
húsinu veit; hærri vegginn má al-
veg spara með því að negla lista
á húsvegginn svo traust, að hann
geti borið þakþyngsli skúrsins.
Þessum skúr skal skipta þannig,
að hafa 3 álnir af öðrum endanum
fyrir hjall og á honum útidyr. í
þeim hluta skúrsins eru auðvitað
hafðir rimlar í staðinn fyrir þjett-
an vegg, bæði á gafli og hlið. Þær
514 alin, sem þá eru eptir. skal
hafa fyrir eldiviðarhús, og nokk-
urn hluta hans til skýlis fyrir bak-
hliðarandyrið.
Húsið ætlast jeg til að sje byggt
eins og vanalega gjörist, með
sterkri grind, þiljað utan með ut-
anhúss-þiljuborðum („klæðnings-
borðum“).
Listar skulu negldir innan á
grindina, svo að hún að þessum
listum meðtöldum verði 7—8
þuml. þykk út að þiljum. Innan
á þessa lista skulu þiljuborðin
koma, og skal troða fast á milli
ytri og innri þiljanna deigum
mosa, en moldarlausum.
Sperrukjálkalengdin á svona
breiðu húsi álít jeg að sje hæfileg
6% álnir, og styrkleiki þeirra 2
þuml. á þykkt, og 5 þuml. á
breidd, og hafa þá á kant.
Ef járnþynnur eru hafðar á þak-
ið, er nóg að hafa langbönd úr
7—8 þuml. breiðum og fullþykk-
um boi'ðum söguðum eftir miðri
breiddinni; þessir renningar sjeu
svo negldir ofan á sperrurnar, og
er nóg að 3 rimlar sjeu undir
hverri plötulengd, og járnið svo
neglt ofan á þá.
En ef asfalts-pappír er hafður í
staðinn fyrir járn, þarf ekki riml-
anna við, en þá verður þakið að
vera úr borðum, lögðum kant við
kant; því ckki er nauðsynlegt að
þau sjeu plægö, þó það sje betra.
Pappann má leggja hvort. heldur
vill langsetis eða upp og ofan. Sje
hann lagður upp og ofan, verða
skarirnar að snúa undan verstu
rigningaráttinni, og mjög er áríð-
andi að hann sje vel lagður og
negldur, svo ekki leki; bezt er að
Ieggja hann í sólarhita, því þá
tognar dálítið á honum, og því
síður er þá hætt við, að hann poki
með tímanum, sem stundum vill
verða, sje hann lagður í kulda, og
þegar pappinn er orðinn vel þurr,
á að bika hann með þar til gjörðu
biki, er ncfnist „asfaltkítti“, en
aldrei með öðru biki, því það er
ónýtt, bezt er að bika í sólarhita,
og liita bikið svo það verði vel
þunnt, og skal ekki bika stærri
blett í einu en 10—15 ferhyrn-
ingsálnir, og strá svo grófum
sandi ofan i bikið, eins miklu og
getur tollað í því; sandurinn verð-
ur að vera hreinn og alveg laus
við mold og leir. A sama hátt á
að bika pappann á eins árs fresti,
svo eptir 2 ár, og í þriðja sinn
eptir 6 ár; úr því á hann að halda
50—100 ár, eptir því sem segir í
fyrirsögn frá verksmiðjunni, þar
sem hann er búinn til, og sam-
kvæmt 50 ára reynslu hjer á landi,
sem sannar að hann er gott og
ódýrt þak. 15 ferhyrningsálnir af
þessum pappa kostar 2—4 kr, ept-
ir gæðum. Þetta „asfaltkítti“ er
lítið eitt dýrara en tjara. Er þá
auðsjeð, að þetta er hið ódýrasta
þak, sem hjer hefir reynt verið,
Innan á sperrurnar skel negla
lista, til þess að fá sömu þykkt út
að þaki eins og var í grindinni
niðri, sem sjc 7—8 þuml.; svo skal
þilja innan listana og troða á milli
vel þjett deigum mosa, alveg eins
niðri.
Svona útbúið þak þekki ég á
tveimur bæjum, og hafa þeir báðir
reynzt mjög hlýir, í þau 3 missiri,
sem þeir eru búnir að standa, svo
að í hvorugum þeirra hefir þurft
að hafa ofn, og er þó nægur hiti.
Hús, sem er byggt, á líkan hátt
og hjer er á vikið, bæði að stærð
og gerð, að meðtöldum flutnings-
kostnaði á öllu efni, lijer um bil
eina dagleið til og frá, kostar ekki
meira en 3000 krónur, og þó öll
verkalaun sjeu fulldýrt reiknuð.
Jeg hefi ekki minnzt hjer neitt
á torfbyggingar, því jeg er viss
um, að þær eru talsvert dýrari og
margfalt endingarverri. Ef torf-
veggir eru hafðir, þurfa þeir að
vera svo hlaðnir og úr svo góðu
efni, að þeir hallist ekki á grind-
ina með tímanum, og hvergi má
grindin vera skorðuð út í þá, þó
að það hafi vanalega verið gjört;
því margra ára reynsla hefir sýnt,
að húsgrindur verða ekki hafðar
svo sterkar, að þær hallist ekki, ef
veggur sígur á þær. Auk þess fúna
viðirnir, ef torf liggur á þá, nema
það sje vel þurt. Ef torfþak á að
vera á húsi, þurfa allir viðir í því
að vera sterkari en ella. Auk þess
er ekki eigandi á hættu, að hafa
luis með torfþaki breiðara en 6
álnir; því bæði er hættara við leka,
ef húsið er breitt, og eins er hætt
við, að viðirnir bogni af þakþyngsl-
unum, og þá myndast laut í þakið;
þangað leitar vatnið, og er liætt
við leka; en komist vatn inn úr
torfinu að viðunum, J)á er fúinn
vís. Alít jeg Jiví lang-hyggilegast
að hætta við torfbyggingar. Ódýr-
leiki verður Jieim að rjcttu lagi
engan veginn til gildis talinn, og
aðrir kostir því síður.
Rvík 20. janúar 1891
Sveinn Sveinsson trjesmiður
FRJÁL8 VERZLON
35