Frjáls verslun - 01.12.1967, Qupperneq 39
FRJÁLS VERZLUN
23
BANKAMÁL
Mikilvægt brautryðjendastarf
Mikill vöxtur Verzlunarbanka íslands h.í. er ekki sízt a3 þakka ýmsum nýjungum,
sem bankinn hefur teldö upp í rekstri sínum.
lenzkra banka til að taka slíka vél
í notkun. Síðar var ákveðið aö
taka gatspjaldakerfið til notkunar
í öðrum deildum bankans. Unnt
reyndist að fækka starfsmönnum
á sama tíma, sem deildum bank-
ans varð kleift að anna síauknum
viðskiptum.
Þetta er aðeins eitt dæmi um
framsækni bankans, en hún birt-
ist raunar á öllum sviðum og þá
ekki sizt í vaxandi viðskiptum ao-
albankans og útibúa hans. í lok
ársins 1956 voru sparifjárinnistæð-
ur innan við 25 milljónir kr. Ár-
ið 1961, þegar Verzlunarbanki ís-
lands h.f. var stofnaður voru
sparifjárinnistæðurnar um 130
milljónir króna og á s.l. ári voru
þær innistæður orðnar 550 millj-
ónir króna. f árslok 1966 nam
varasjóður bankans 17 milljónum
króna. Heildartekjur bankans á
árinu 1966 námu 56,7 milljónum
króna og höfðu aukizt um 13.4
millj. kr. frá ái;inu áður. Heildar-
innistæður við árslok 1966 námu
samtals 605.1 millj. kr. og höfðu
þær aukizt um 60.2 millj. kr. eða
Bankaráð og bankastjórn:
Magnús Brynjólfsson, Þorvald-
ur Guðmundsson, Kristján
Oddsson, Höskuldur Ólafsson,
Egill Guttormsson.
Bankinn festi kaup á húseigninni Bankastræti 5 árið 1964 og skapaði
með því grundvöll fyrir góðri starfsaðstöðu.
MEÐ notkun skýrslugerðarvéla
fyrir gatspjöld til úrvinnslu gagna
hefur Verzlunarbanki íslands h.f.
unnið brautryðjandastarf á sviði
bankabókhalds hér á landi. Eins og
kunnugt er yfirtók bankinn rekst-
ur Verzlunarsparisjóðsins, en á
starfstíma hans, 1956—1961, var
strax í upphafi tekið upp það véla-
bókhald, sem þá var eingöngu
notað í bönkum hérlendis. Þar að
auki var á öndverðum starfstíma
sjóðsins tekið í notkun vélabók-
hald á víxlum, sem gerði kleift aö
anna afgreiðslu hins síaukna f jöida
þeirra.
Vélabókhaldið í heild var þann-
ig forsenda þess, að sparisjóðnum
tókst að annast hin ört vaxandi
viðskipti, sem urðu með hverju
árinu, sem leið. Þetta bókhalds-
kerfi var notað þar til Verzlunar-
bankinn fluttist í stórhýsi það er
hann keypti við Bankastræti.
Skömmu eftir, að bankinn tók
til starfa í hinum nýju húsakynn-
um, voru tekin í notkun rafreikn-
ir og skýrslugerðarvél af IBM-gerð
til úrvinnslu í víxladeild bankans.
Var Verzlunarbankinn fyrstur is-