Frjáls verslun - 01.12.1967, Page 68
4D
VÉLAR — TÆKNI
Hentugur
krani
ÞAÐ ER mikið byggt á íslandi
í dag og stöðugt verið að flytja til
landsins einhver tæki sem geta
auðveldað og flýtt fyrir þeim iðn-
aði. Heildverzlunin Hekla er bú-
in að fá eitt slíkt, þar sem er
TELEKRANE frá BANTAM verk-
smiðjunum. Eins og nafnið bendir
til er hér um krana að ræða, en
nok'kuð frábrugðinn þeim, sem hér
hafa verið notaðir hingað til. Hann
er á sérstökum bíl og því auðvelt
að færa hann úr stað, og annar
kostur gerir hann alveg sérlega
þægilegan í meðförum.
Þegar ekki er verið að vinna
með krananum er bóman ekki
nema tuttugu og fimm fet ug
stendur ekki nema 10,6 fet fram
fyrir hús bílsins. Þegar hann er
tekinn í notkun er hægt með einu
handbragði að lengja bómuna upp
í sextíu fet, því að hún er dregin
út og inn með vökvadælu, og get-
ur stjórnandi kranans á örfáum
sekúndum stillt á nákvæmlega
hæfilega lengd. Auk þessara sex-
tíu feta sem fást þegar hún er í
fullri lengd, er hægt að bæta við
tuttugu feta „jib“.
Telekrane getur lyft allt að
fimmtán tonnum, og þó að sá sem
við birtum hér myndir af sé sá
fyrsti sem Hekla flytur til íslands,
hafa þeir verið á markaði í Banda-
ríkjunum og víðar um nokkurt
skeið og fengizt af þeim góð
reynsla.
Við hvers konar byggingastörf
er það mikill kostur að geta stillt
lengd bómunnar eins og með þarf,
auk þess sem ekki er erfiðara að
fara með kranann milli vinnustaða
en stóran vörubíl. Flestir Reyk-
víkingar hafa séð til ferða stóru
krananna sem hér eru í notkun,
þegar þeir fara um borgina, ríf-
andi niður rafmagnsvíra, eða jru
hreinlega fastir í umferðinni, enda
mun það hafa komið til tals að
banna akstur þeirra nema bóman
sé tekin af, og það er ekkert augtia-
bliksverk. Þar sem kraninn er
knúinn með þrem sjálfstæðum
vökvadæh.m er hægt að hreyfa
hann allan í einu, þ. e. lengja eða
stytta bómuna, hækka hana og
lækka og snúa honum í hring. Út-
FRJÁLB VERZLUN
leggjararnir svonefndu sem styðja
kranann þegar hann er við vinnu
eru einnig vökvaknúnir. Kraninn
sjálfur snýst svo á kúluleguhring,
sem er stöðugri, endingarbetri og
auðveldari í meðförum en gömlu
rúllurnar.
Bíllinn er knúinn V-8 Chrysler
vél sem er 138 hestöfl; kraninn er
hins vegar knúinn 105 hestafla
G.M. dieselvél. í öryggisskyni er
búið þannig um hnútana að ekki
er hægt að lækka bómuna nema
vélin sé í gangi, og öryggislæsing
á bómunni kemur í veg fyrir að
hún falli niður ef einhver bilun
yrði, t. d. þó að slöngur spryngi.
Króknum er lyft með vökvaspili
og hægt er að hafa þau tvö, þann-
ig að hægt er að nota krabba, seg-
ul eða annað sem tvo víra þarf við.