Frjáls verslun - 01.12.1967, Blaðsíða 75
FRJALS VERZLUN
43
Afleiðingar neikvæðrar þróunar
Ríkisstjórninni heíur ekki tekizt að ráða við launþegahreyfinguna.
Gengisfellingin og hliðarráðstafanir með henni eru afleiðingar
af kröfugerð launþega og undanlátssemi ríkisstjórnarinnar.
Gallar þeirrar þróunar, semver-
ið hefur í efnahagsmálum íslend-
inga undanfarin ár hafa nú kom-
ið berlega í ljós. Einkenni þró-
unarinnar hefur verið hömlu-
laus einkaneyzla og of mik-
il fjárfesting hins opinbera og fyr-
irtækja. Á árunum 1964—1966,
þegar aflabrögð voru hvað mest
og verðlag á mörkuðum erlendis
einna hæst, var nauðsynlegt að
takmarka fjárfestinguna og einka-
neyzluna, til að hindra ofþenslu í
þjóðarbúskapnum. Sérfræðingar
ríkisstjórnarinnar í efnahagsmál-
um lögðu fast að ríkisstjórninni að
gera nauðsynlegar ráðstafanir, en
hún guggnaði fyrir samtökum
launþega, og þá ekki sízt samtök-
um tekjuhæstu stéttarinnar, síld-
arsjómanna. Ef farin hefði verið
sú leið, sem ríkisstjórnin var búin
að velja, hefðum við naumast
staðið jafnilla að vígi og raun ber
(9/ta£
OPAL eru .tízkusokkar
OPAL 20, denier
OPAL 30 denier
OPAL 60 denier
OPAL krep sokkar
OPAL sokkarnir eru á
hagstœðu verði
EINKAUMBOÐ FYRIR OPAL.
Klt. ÞOltVALDSSON & CO
Grettisgötu 6, Símar: 24730 og 24478.