Frjáls verslun - 01.12.1967, Blaðsíða 80
4B
FRJÁLS VERZLUN
Verzlunar-
menn
mófmæla
ÁLYKTANIR
TVEGGJA
FUNDA
Almennur fundur Kaupmannasamtaka íslands, haldinn að
Hótel Sögu, fimmtudaginn 14. des. 1967, mótmælir harðlega
afgreiðslu verðlagsákvæða, á fundi Verðlagsnefndar hinn 12.
þ. m., og lýsir allri ábyrgð og afleiðingum í því sambandi á
hendur ríkisstjórninni og þeim verðlagsnefndarmönnum, er
að samþykktinni stóðu.
Sérstaklega vítir fundurinn, að verðlagsákvæðin eru sett
án nokkurs tillits til þarfa verzlunarinnar og að ákvarðanir
meiri hluta nefndarinnar eru byggðar á því, að ná pólitískum
samningum milli aðila, sem standa utan við verzlunina. Slík
samþykkt er augljóst og gróft brot á gildandi landslögum, nr.
54 frá 1960.
Fundurinn krefst þess af Ríkisstjórn íslands, að án tafar
verði hafizt handa um að bæta úr 'því misrétti, sem átt hefur
sér stað.
Almennur fundur í Félagi ís-
lenzkra stórkaupmanna, haldinn
föstudaginn 15. desember 1967,
mótmælir harðlega þeim verðlags-
ákvæðum, sem knúin voru fram
þann 12. þ. m. gegn mótmælum
fulltrúa verzlunarstéttarinnar, sem
algerlega óraunhæfum og ófull-
nægjandi, og Iýsir fundurinn allri
ábyrgð á ríkisstjórnina vegna af-
leiðinga þeirra.
Telur fundurinn, að stórkaup-
menn (innflytjendur) geti á eng-
an hátt innt af hendi hlutverk sitt
gagnvart neytendum, ef þeir eiga
að starfa eftir svo óraunhæfum
verðlagsákvæðum, og minnir ráða-
menn þjóðarinnar á, að stórkaup-
menn hafa þegar orðið fyrir stór-
töpum af gengisfellingunni, sem
skipta milljóna tugum.
Þá vill fundurinn og undir-
strika, að sá reksturskostnaðar-
auki, sem af gengisfellingunni
leiðir og reikna má með að vart
verði undir 20—25%, leiðir af sér
auknar uppsagnir starfsfólks og
samdrátt á öllum sviðum reksturs-
ins og minni möguleika á hag-
kvæmum vöruinnkaupum erlend-
is vegna rekstursfjárskorts.
Telur fundurinn, að slík þreng-
ing á kjörum innflutningsverzlun-
arinnar leiði til alls konar spá-
kaupmennsku og okurverzlunar,
sem hljóti að skaða hag lands og
þjóðar að mjög verulegu leyti og
sé sízt fallin til að veita almenn-
ingi sem hagstæðust kjör.
Loks beinir fundurinn því til verzlunareigenda um land
allt, með tilliti til þeirrar óvissu, sem ríkjandi sé í þessiun
efnum, að rétt mun vera að hafa lausa samninga við verzlun-
arfólk, en almennur uppsagnarfrestur er 3 mánuðir.
1952-1967
15 ÁR
í FARARBRODDI