Frjáls verslun - 01.12.1970, Side 25
FRJALS VERZLUN
23
ferðaskrifstofa samkeppni við
skipafélögin og flugfélögin með
leigu á farþegaskipum og flug-
vélum. Eimskipafélagið ákvað
þá að stofna ferðaskrifstofu til
að tryggja hagsmuni sína. Síðar
ákváðu Flugfélag íslands og
Eimskipafélag íslands að stofna
sameiginlega ferðaskrifstofuna
„Úrval“, sem hóf rekstur
snemma á árinu 1970, og hefur
þegar sannað gildi sitt og til-
verurétt.
Öllum ferðaskrifstofum er
heimilt að selja farseðla með
flugvélum Flugfélags íslands og
skipum Eimskipafélags íslands.
Eimskipafélagið, Flugfélag
íslands og ferðaskrifstofan „Úr-
val“ hafa boðið öllum ferða-
skrifstofunum upp á samvinnu
og samstarf sem stuðlað geti
að auknum ferðamannastraumi
og fyrst og fremst betri þjón-
ustu við erlenda ferðamenn er
til landsins koma og íslending-
um, sem ferðast vilja til ann-
arra landa.
Varðandi afskipti ríkisins af
þessum atvinnugreinum, vil ég
segja, að ég tel að ríkisstjórnir
undanfarinna ára hafi sýnt
þeim skilning og velvild. Hér
er um að ræða víðtæka þjón-
ustu við almenning og þó ég
sé fylgjandi sem mestu frelsi
og frjálsri samkeppni, þá tel
ég ekki verði hjá því komizt
að ríkisvaldið fylgist stöðugt
með framvindu flutningaþjón-
ustu, sem stundum er líkt við
lífæð þjóðarinnar, enda mun
svo vera í þeim löndum, sem
ég þekki til.
Eimskipafélag íslands hefur
það á stefnuskrá sinni að ann-
ast siglingar og stuðla að bætt-
um samgöngum almennt og
þjónustu við ferðamenn. Það
forðast að blanda sér í inn-
og útflutningsverzlun eða fram-
leiðslu.
Hvers er íslenzki verzlunar-
skipaflotinnn í rauninni megn-
ugur? Menn tala um of lítil
skip — og of fá og óeðlilega
háar leigugreiðslur til erlendra
skipafélaga. Er uppbyggingin á
eftir samtímanum?
Því miður verð ég að taka
undir það að íslenzki verzlun-
arskipaflotinn er ekki eins stór
og voldugur eins og æskilegt
væri, og hefi ég hér á undan
gert grein fyrir ástæðum, sem
til þess liggja. Hins vegar er
ég ekki sammála því að fjöldi
eða stærð skipanna sé eitthvert
aðalatriði. Of mörg skip á of
litlum markaði geta orsakað
taprekstur og hrörnun. Stór
skip þurfa heldur ekki að leysa
allan vanda. Aðalatriðið er, að
skipin henti fyrir þau verkefni,
sem þeim er ætlað að leysa
og að nýting þeirra sé sem bezt.
Uppbyggingin hjá okkur er á
eftir tímanum. Fáist aukinn
skilningur á því, að íslenzku
skipafélögunum sé nauðsynlegt
að njóta hagnaðar sem þeim
tekst að afla í samkeppni inn-
byrðis og við erlenda aðila, þá