Frjáls verslun - 01.12.1970, Blaðsíða 44
42
FRJALS VERZLLÍN
I
Pétur Sigurósson og Olalur iViariusson, P & O.
Innlendar fréttir
IJr ýmsum átlum
NÝ VERZLUN P & Ó
Fyrir skömmu var opnuð
þriðja verzlunin í eigu Herra-
deildar P & Ó, en hún kemur
þó í stað annarra þeirra verzl-
ana, sem fyrir voru og sú verður
lögð niður um áramótin. Þessi
nýja verzlun er í P & Ó húsinu
að Laugavegi 66, sem verið hef-
ur í byggingu undanfarin ár.
Þar verða ýmsar fleiri verzlan-
ir.
Þeir Pétur Sigurðsson og Ól-
afur Maríusson, sem eiga og
reka Herradeild P & Ó opnuðu
fyrstu verzlun sína fyrir 11 ár-
um, að Austurstraeti 14, og
verzla þeir þar áfram.
Nýja verzlunin að Laugavegi
66 er sniðin að enskum fyrir-
myndum, en Ólafur Maríusson
skipulagði innréttingar og teikn
aði þær.
232 BÆKUR FRÁ AB
Á 15 ára ferli Almenna bóka-
félagsins hefur það gefið út 232
bækur, og eru margar þeirra
uppseldar hjá félaginu. Um 170
útgáfubókanna eru enn fáanleg-
ar. Félagsmenn AB fá bækur
félagsins á 20-30% lægra verði
en aðrir, en engar skuldbind-
ingar fylgja því að vera í félag-
inu, nema að kaupa 4 bækur
á ári minnst. Þeir sem kaupa
minnst 6 bækur fá gjafabók í
kaupbæti.
Nýjar AB bækur eru m.a.:
„Hjartað og gæzla þess“, eftir
dr. Lawrence, bandarískan
hjartasérfræðing og geimfara-
lækni, þýðingu gerði Þorsteinn
Þorsteinsson dósent í lífefna-
fræði við HÍ, en formáli er eft-
ir Árna Kristinsson hjartasér-
fræðing. „Jurtabók AB“ í sama
flokki og „Fuglabók AB“ og
„Fiskabók AB“, texti þessarar
nýju bókar, sem ber undirtit-
ilinn „íslenzk ferðaflóra“ er
eftir Áskel Löve prófessor, en
myndir eru eftir Dagny Tande
Lid og Dórdísi Löve. „Tilraun
um manninn“ eftir Þorstein
Gylfason. „Anna (ég) Anna“,
síðasta verðlaunabók Norður-
landaráðs, eftir danska rithöf-
undinn Klaus Rifbjerg.
AB á og rekur Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar, og gef-
ur það fyrirtæki einnig út bæk-
ur. Meðal þeirra nýjustu eru
„Mannkynssaga BSE“, fyrsta
bindi, eftir Heimi Þorleifsson
menntaskólakennara og Ólaf
Hansson prófessor, og „Bílabók
BSE“, þýdd úr dönsku og stað-
færð af Bjarna Kristjánssyni
skólastjóra.
SILLI & VALBI CPNA
FYRSTA ÁFANGANN í
VERZLUNARMIÐSTÖÐINNI
Tímamót voru mörkuð í sögu
íslenzkrar verzlunar nú um
mánaðamótin, er athafnamenn-
irnir þjóðkunnu Sigurliði
Kristjánsson og Valdemar Þórð-
arson opnuðu fyrsta áfangann
í hinni glæsilegu verzlunarmið-
stöð sinni á mótum Álfheima
og Suðurlandsbrautar. Áfang-
inn sem opnaður var, er á um
samtals 1500 fermetra gólfíleti.
Verzluninni er skipt í deildir,
nýlenduvörudeild, kjötvöru-
deild, snyrtivörudeild, en auk
þess er sérstakt kjötvinnslu- og
pökkunarrými. Þá eru fyrir
verzlunina stórir frysti- og
kæliklefar. Er hin nýja verzlun
stærsta matvöruverzlun lands-
ins og þótt víðar væri leitað.
Eins og fyrr segir er hér að-
eins um að ræða fyrsta áfang-
ann í stói-hýsinu, en það er
31.679 rúmmetrar að stærð og
heildargólfflatarmál 8.130m2.
Þegar allt húsnæðið verður
tekið í notkun, verður hér um
að ræða verzlunarmiðstöð
(Shopping Center) á heims-
mælikvarða, þar sem 30-40 fyr-
irtæki, verzlanir og þjónustu-
fyrirtæki verða undir einu og
sama þaki við nýtízkulegustu
og fullkomnustu aðstæður.
Á vöruvögnunum eru sæti fyrir,
litla fólkið.