Frjáls verslun - 01.05.1972, Qupperneq 13
ISIettótekjur Sölu-
nefndarinnar 35 milljónir
Nettótekjur Sölunefndar
varnarliðseigna á síðasta ári
höfðu verið áætlaðar við und-
irbúning fjárlaga kr. 11 millj.
895 þús., en urðu 35 millj. 505
þús. Að sögn Helga Eyjólfsson-
ar, forstjóra Sölunefndarinnar,
stafar þetta af hagkvæmum
innkaupum hjá varnarliðinu
og einstaklingum á vegum
þess, auk þess sem eftirspum
eftir vörum hjá Söluncfndinni,
sérstaklega bifreiðum, hefur
verið mikil.
Vörusala Sölunefndarinnar
nam á síðasta ári 61 millj. 878
þús. Þar með er talin sala á
194 fólksbílum, 100 vörubílum,
ásamt jarðýtum, krönum og
fleiri vinnuvélum. Sölunefnd-
in kaupir fólksbíla af varnar-
liðsmönnum á sambærilegu
verði við það, sem gerist sam-
kvæmt söluskrám á austur-
strönd Bandaríkjanna á hverj-
um tíma. Kaup á tækjum og
vörum frá hernum sjálfum
fara fram eftir tilboðum, sem
Sölunefndin gerir.
MIKIL EFTIRSPURN
Fólksbifreiðarnar, sem sölu-
nefndin selur, eru allt frá því
að vera 10 ára og niður í
módel þessa árs, og fara útboð
fram vikulega. Venjulega eru
sex bílar boðnir út samtímis.
Berast að jafnaði 100-200 til-
boð í hvern bíl. Er áhugi ís-
lendinga á amerískum bílum
því greinilega mjög mikill.
Gangverð á bílum hjá Sölu-
nefndinni mun vera hærra en
það, sem gerist á almennum
bílamarkaði hérlendis og er
ástæðan sú, að bílarnir frá
varnarliðsmönnum eru yfir-
leitt betur farnir vegna betri
vega vestan hafs.
ALLT SELST UPP
Fyrir nokkrum árum reisti
Sölunefnd varnarliðseigna
tveggja hæða birgða- og verzl-
unarhús við Grensásveg, 2150
fermetra að flatarmáli. Má
segja, að allt, sem þangað kem-
ur til sölu, hverfi sem dögg
fyrir sólu, af hverju tagi, sem
það kann að vera. Að sögn
Helga Eyjólfssonar eru vör-
urnar, sem þar eru á boðstól-
um í langflestum tilfellum
ónotaðar. Oft hefur það kom-
ið fyrir, að stórar vörusending-
ar lenda á Keflavíkurflugvelli
fyrir einhver mistök, en áttu
kannski upphaflega að fara til
Afríku eða Grænlands. Þannig
var til dæmis um 5000 flugna-
net, reyndar tjöld úr flugna-
neti, sem átti að senda til
Afríku, en höfnuðu hjá varn-
arliðinu hér. Þau fóru í sölu
hjá Sölunefndinni og hreyfð-
ust ekki í langan tíma. Þá kom
Helgi Eyjólfsson því til leiðar,
að Jörundur Brynjólfsson,
Mý bók: Vín
vinar drekka
„Vín skal til vinar drekka“
er handbók fyrir hófsamt og
skemmtilegt fólk, sem nýlega
hefur verið gefin út á forlagi
Frjáls framtaks hf. Er í henni
að finna ýmsan fróðleik um
vín, vínframleiðslu og vín-
notkun, ásamt uppskriftum að
fyrrv. alþingismaður, gerði til-
raun með þessi tjöld yfir hey-
galta og reyndust þau passa
alveg mátulega fyrir þá. Var
ekki að sökum að spyrja, að
5000 flugnatjöld seldust upp á
svipstundu og voru notuð hér
í sveitum landsins.
Ágóðinn af rekstri Sölu-
nefndar varnarliðseigna hefur
verið allt að 50 milljónum _á
einu ári. Allt þetta fé rennur
beint í ríkissjóð og fara greiðsl-
ur fram mánaðarlega.
skal til
kokkteilum og vínblöndum
samkvæmt alþjóðlegum staðli,
og eins viðurkennda úrvals-
drykki íslenzkra barþjóna.
Handbók þessari er ætlað að
verða fólki til aðstoðar í með-
ferð áfengra drykkja og stuðla
að siðsamlegri neyzlu þeirra.
Oft er þröng á þingi, þegar bifreiðar eru auglýstar til sýnis hjá
Sölunefndinni.
FV 5 1972
13