Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1972, Blaðsíða 71

Frjáls verslun - 01.05.1972, Blaðsíða 71
Reykjavíkurborg: IJnnið að skipulagi 1000 ibúða hverfis á Eiðisgranda Aukin eftirspurn eftir iðnaðarloðum á Ártúnshöfða Rætt við IVIá Gunnarsson, skrifstofustjóra borgarverkfræðings „Stóra málið í úthlutun byggingalóða á næstunni hér í Reykjavík er Eiðisgrandinn, á mörkum borgarinnar og Sel- tjarnarneshrepps. Þar er gert ráð fyrir að reistar verði 1000 íbúðir í einbýlis- og fjölbýlis- húsum. Borgarráð hefur þegar Iátið hefja undirbúningsvinnu að þessu marki, en endanlegar ákvarðanir um skipulag hafa þó ekki enn verið teknar. Þó er hugsanlegt, að eitthvað af lóðum þarna verði tilbúið til úthlutunar á næsta ári.“ Þannig fórust Má Gunnars- syni, skrifstofustjóra borgar- verkfræðings í Reykjavík, orð, er FV ræddi við hann um næstu verkefni framundan í skipulagsmálum Reykjavíkur og úthlutun lóða til bygginga. BREIÐHOLTIÐ EFST Á BLAÐI Aðalbyggingasvæði Reykvík- inga um þessar mundir er Breiðholtshverfi III. Við Vest- urberg, að vestanverðu, hefur verið úthlutað á þessu ári lóð- um undir 70-80 gerðishús, en það eru vinkillaga hús, byggð fjögur á sameiginlegri lóð með samræmdu útliti. Að austanverðu við sömu götu hefur verið úthlutað 40 raðhúsalóðum og að auki 40-50 húsum í Fellunum svo nefndu, í Breiðholti III, nánar tiltekið við Torfufell. Þá er ný gata, Rjúpufell, austast í Fellunum, að verða tilbúin til úthlutunar. Verða auglýstar 40 raðhúsa- lóðir þar nú á næstunni, ef allt gengur samkvæmt áætlun. SKILYRÐI BORGARRÁÐS Már Gunnarsson segir, að í Breiðholti hafi verið mætt allri eftirspurn eftir lóðum, hafi umsækjendur á annað borð uppfyllt skilyrði, er borg- arráð hefur sett. Þá hafa nokkrir umsækjendur líka fall- izt á úthlutun á öðrum stað í hverfinu en þeir sóttu um í fyrstu. Varðandi úthlutun í- búðarhúsalóða hefur borgar- ráð það helzt í huga, hvort um- sækjandi hafi verið búsettur í Reykjavík og átt þar lög- Már Gunnarsson: „Fœrri aðilar, en sterkari, byggja." heimili í fimm ár, hvort hann hafi áður fengið lóð, hvaða tekjur hann hefur og hvernig hann hyggst fjármagna bygg- inguna, aðrar aðstæður um- sækjanda svo sem fjölskyldu- stærð og ennfremur, hvort hann hafi greitt upp allar skuldir sínar við Reykjavíkur- borg hjá Gjaldheimtunni. í því sambandi má geta þess, að all- ar umsóknir, sem borizt hafa um lóðir í Stóragerði, voru um þriggja vikna skeið til rann- sóknar hjá Gjaldheimtunni. Ef eftirspurn eftir lóðum á tilteknum stað er mjög mikil, hefur orðið að þrengja þessi skilyrði. Það er lóðanefnd, skipuð skrifstofustjóra borgar- verkfræðings og borgarritara, sem leggur fram tillögur til borgarráðs um úthlutun, en ráðið tekur hina endanlegu ákvörðun. 40 EINBÝLISHÚS FYRIR NORÐAN VESTURBERG Á árinu verður úthlutað 17 fjölbýlishúsum í Breið- holti III, frá 9 íbúða og upp í 63 íbúða. Skipulag fyrir 40 einbýlishús nyrzt á hæð fyrir norðan Vesturberg hefur ver- ið samþykkt, en verður ekki byggingarhæft fyrr en á næsta ári, gæti hugsanlega orðið í lok þessa árs. Um byggingaframkvæmdir í Breiðholti II hafði Már Gunn- arsson það að segja, að þar væri einkanlega áformað að reisa einbýlishúsa- og raðhúsa- hverfi, á 4. hundrað einbýlis- hús og um 300 raðhús. Fyrsta úthlutun í Breiðholt II verður á næsta vori, en framkvæmdir í hverfinu munu dreifast á þrjú ár. BYGGT í SELÁSNUM Á NÆSTU 3-4 ÁRUM í Selásnum verða 182 rað- hús og 178 einbýlishús, en sam- tals 204 íbúðir í fjölbýlishús- um, er verða tveggja og þriggja hæða. Selásinn er eignarland og þar hefur verið stofnað hagsmunafélag landeigenda, sem annast samninga við borg- ina. Reykjavíkurborg skipu- leggur svæðið, en félagið gerir út um það, hvað af lóðum kemur í hlut hvers og eins landeiganda, og munu þeir síðan annast ráðstöfun á þeim. Þarna verður byggt á næstu þremur til fjórum árum. MIKIL EFTIRSPURN í STÓRAGERÐI Geysilegur fjöldi umsókna barst um lóðir í Stóragerði, sem auglýstar voru í vetur. Sóttu á sjötta hundrað manns FV 5 1972 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.