Frjáls verslun - 01.05.1972, Blaðsíða 19
sem ítalskar skipasmíða-
stöðvar afhentu síðastliðinn
nóvember, hefur Kloster
fjárfest 700 milljónir
norskra króna í skemmti-
siglingum, og Norwegian
Caribbean Lines er nú
stærsti aðilinn í skemmti-
ferðasiglingum á Karabía-
hafi. í samvinnu við British
Overseas Airways Corpora-
tion hyggst fyrirtækið auka
þátttöku túrista frá Evrópu
í þessum ferðum upp í 30
eða 40% fyrir 1975.
í Miami eru einnig höfuð-
stöðvar Royal Caribbean
Cruise Line A/S, sem var
stofnað í Osló af skipafé-
lögunum Anders Wilhelm-
sen & Co. og I. M. Skaugen
& Co. ásamt skipafélaginu
Gotaas-Larsen Inc. í New
York. 3 systurskip, 18.500
tonna, sem geta flutt
allt að 900 farþega hvert,
hafa verið pöntuð í Finn-
landi fyrir félagið, og tvö1
þeirra eru nú þegar kom-
in í gagnið, en hið þriðja
verður afhent í ár.
Ruth Brandt, hin norsk-
fædda eiginkona Willy
Brandts, skírði í desember
síðastliðnum hið síðara af
tveimur 20 þúsund tonna
skipum, sem byggð voru
fyrir Norwegian Cruiseships
A/S. Systurskip þess, sem
einnig var smíðað í Þýzka-
landi, var skírt síðast liðið
sumar, og það gerði norska
krónprinsessan Sonja. Bæði
verða skipin með aðalbæki-
stöð í New York og munu
sigla til Vestur-Indía. Að
Norwegian Cruiseships
standa tveir kunnir skipa-
eigendur í Osló, Öivind Lor-
entzen og Fearnley Eger.
100 Ara gömul skipa-
FÉLÖG PANTA LÚXUS-
SKEMMTIFERÐASKIP
Tvö virðuleg og rótgróin
skipafélög, sem hafa starfað
við farþegaflutninga í meira
en öld, hafa bundizt sam-
tökum við þriðja norska
skipafélagið og stofnað Roy-
al Viking Line A/S, sem
hefur aðalstöðvar í Osló.
Skipafélögin þrjú hafa
hvert um sig pantað eitt
21.500 tonna skip, og verða
öll þrjú skipin smíðuð í
Finnlandi. Þau verða þann-
ig úr garði gerð, að þau
uppfylli mestu kröfur um
lúxus. Hið fyrsta, Royal
Viking Star, fer fyrstu ferð
sína til Nord Kap í júlí í
sumar. Hin tvö á að afhenda
næsta ár. Þau verða í sigl-
ingum víða um heim og
hafa aðalstöðvar í San Fran-
cisco.
Að Royal Viking Line
standa Det Bergenske
Dampskibsselskab í Bergen,
Det Nordenfjeldske Damp-
skibsselskab í Þrándheimi
og A. F. Klaveness & Co.
A/S í Osló.
Eins og Bergenske og
Nordenfjeldske hefur Fred.
Olsen & Co. í Osló lengi
starfað að farþegaflutning-
um. Þetta fyrirtæki rekur
reglubundnar skemmtiferð-
ir milli London og Kanarí-
eyja á veturna. A sumrin
eru sömu skip í siglingum
milli Bretlands og Noregs.
Dýrasta skemmtiferða-
skipið, sem verið er að
smíða fyrir norska aðila, er
nýja flaggskipið, sem Nor-
wegian America Line hef-
ur pantað. Það er nú í smíð-
um í Bretlandi og mun
kosta meira en 200 milljón
norskar krónur.
Vegna samdráttar í far-
þegaflutningum yfir At-
lantshaf rekur Norwegian
America Line um þessar
mundir einungis eitt skip,
Sagafjord. Nýja skipið verð-
ur rekið nær eingöngu sem
skemmtiferðaskip. Smíði á
að vera lokið árið 1973.
FERÐAMENN VELJA
SIGLINGAKUNNÁTTU
NORÐMANNA
Að sögn Warren S. Titus,
forstjóra söluskrifstofu Roy-
al Viking Line í San Fran-
cisco, sýna skoðanakannan-
ir í Bandaríkjunum og Bret-
landi, að fólk, sem ferðast
með skemmtiferðaskipum,
kýs helzt skip frá Norður-
löndum og einkum Noregi.
Noregur hefur getið sér
mestrar frægðar erlendis
fyrir siglingar. Siglinga-
kunnátta Norðmanna stend-
ur á rótum meira en þús-
und ára sögu, og nú er
norski kaupskipaflotinn sá
fjórði í heiminum með um
þrjú þúsund skip, sem eru
samtals um 21 milljón
brúttólestir.
BÆTT
NYTT
SÍMA-
NÚMER
26611
Ferða-
skrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17
Reykjavík
FV 5 1972
19