Frjáls verslun - 01.05.1972, Qupperneq 55
ir iðnaðarmenn, eða allt að
500 þúsund í árslaun miðað
við venjulegan vinnutíma iðn-
aðarmanna.
Engin veruleg þróunarstökk
hafa orðið innan trésmíðinnar í
mörg ár, og sagði Hallvarður
að það væri ekki fyrirsjáanlegt
í nánustu framtíð á meðan
kröfur fólks til húsnæðis héld-
ust óbreyttar.
STÁL- OG KROSSVIÐSMÓT
RYÐJA SÉR TIL RÚMS.
Þó hafa ýmis hagkvæm
verkfæri verið tekin í notkun
á síðari árum, og krossviðs-
og stálmót eru nú notuð í
auknum mæli, þótt gamla upp-
sláttaraðferðin sé enn í fullu
gildi.
Aðalkostir krossviðsmótanna
eru þeir, að mótauppsláttur
verður fljótlegri og veggirnir
Hallvarður Guðlaugsson:
„Spennan í hámarki."
koma sléttari undan mótunum.
Svipað er að segja með stál-
mótin. Þau eiga að flýta veru-
lega fyrir og spara vinnukraft,
en þau hafa það nýlega verið
tekin í notkun hér, að iðnað-
armenn eru rétt að venjast
þeim.
Þar sem steypt er með stál-
mótum, á innanhússpússning
að vera óþörf. Veggirnir eru
aðeins sandsparslaðir og mál-
aðir.
Hins vegar er sá galli við
stálmótin, sem eru í stórum
einingum, að skipulagsmögu-
leikar eru miklu minni en þar
sem krossviðsmót eða gamla
uppsláttaraðferðin er notuð.
Þess vegna taldi Hallvarður
að venjulegur mótauppsláttur
ætti enn langt líf fyrir hönd-
um, og þá sérstaklega við
smærri byggingar.
Verktaki:
Verktakadauði áberandi
— Verktakadauði er talverð-
ur á meðal aðalverktakafyrir-
tækja hér á landi upp á síð-
kastið, þrátt fyrir að það fær-
ist í vöxt að verk séu boðin
út, sagði Ármann Örn Ar-
mannsson hjá verktakafyrir-
tækinu Ármannsfelli, og kvað
hann margar ástæður til þess
liggja.
Fljótt á litið virðist honum
sem hin geysiharða samkeppni
á byggingamarkaðnum upp á
síðkastið, ætti hvað stærstan
þátt í erfiðleikum byggingafyr-
irtækjanna. Þau reiknuðu sér
lágmarkstekjur af verkefn-
um, og það stæði eðlilegri þró-
un þeirra fyrir þrifum.
Lægstu tilboðum væri næi
undantekningarlaust tekið, sem
hefði í för með sér, að verk-
takar kepptust við að bjóða
sem lægst í verkin til þess að
fá þau.
Það hefur því miður oft í
för með sér, sagði Ármann, að
tekjur verktakanna hrökkva
ekki fyrir kostnaði við viðkom-
andi verk, og þess vegna verða
fyrirtækin gjaldþrota, nema
þau séu því fjársterkari fyrir.
Hann sagði að það væru þó
ekki eingöngu niðurboð og
rangir útreikningar, sem yllu
þessum erfiðleikum, heldur
einnig það, að verðhækkanir á
íbúðamarkaðinum haldast ekki
í hendur við kostnaðarhækkan-
ir, eða koma á eftir þeim.
Gengisfellingar koma þó
einna verst niður á þessum
fyrirtækjum, enda lögðu mörg
þeirra upp laupana árin 1968
og ’69, þegar gengið hrað féll.
SAMKEPPNIN LÆKKAR
ÍBÚÐARVERÐIÐ.
Þrátt fyrir þessa erfiðleika
byggingafyrirtækjanna og sí-
aukinn kostnað, mun nú auð-
veldara fyrir ungt fólk að eign-
ast íbúðir en líklega nokkru
sinni fyrr.
Ástæðuna fyrir því taldi Ár-
mann vera hina geysihöfðu
samkeppni, sem ýtti undir
aukna hagkvæmni, auk þess
sem verktakafyrirtæki reikn-
uðu sér lágmarkstekjur af
verkefnum, til þess að fá þau.
Fleiri og fleiri láta verktaka sjá um byggingar.
FV 5 1972
55