Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1972, Side 11

Frjáls verslun - 01.11.1972, Side 11
Island IVáttúruverndarráð: Skapar aðstöðu fyrir ferðafóík að Skaftafelli IVýtt upplýsingarit handa framkvæmda- aftilum Hjá Náttúruverndarráði er nú unnið að því að semja reglugerð um framkvæmd á náttúruverndarlögunum, sem sett voru fyrir tveimur árum. Annað meginverkefni ráðsins er skipulag þjóðgarðsins í Skaítafelli. Að sögn Árna Reynissonar, framkvæmdastjóra Náttúru- verndarráðs, er lögð mikil áherzla á að búa þjóðgarðinn í Skaftafelli undir þá auknu umferð, er þangað mun liggja, þegar hringvegurinn verður opnaður árið 1974 eða 1975. TÍU MILLJÓNIR TIL SKAFTAFELLS í frumvarpi að fjárlögum fyrir næsta ár er gert ráð fyr- ir, að 20 milljónir renni til Náttúruverndarráðs en þar af verður um það bil helmingi varið til framkvæmda í Skaftafelli. Þar er fyrst og fremst um að ræða gerð tjaldstæðis með hreinlætisað- stöðu og verzlun. Ennfremur verða skipulagðir göngustígar og akbrautir innan þjóðgarðs- ins og gefin út upplýsingarit og kort þar að lútandi. AUGLÝSINGASPJÖLD VIÐ VEGI BÖNNUÐ Fyrir nokkru vakti Náttúru- verndarráð athygli á laga- ákvæðum, er banna uppsetn- ingu auglýsingaskilta meðfram þjóðvegum. Af þessu tilefm spurðum við Árna, hvo'rt hart væri tekið á þessu enda vitað að margir aðilar hafa sett upp skilti til að beina athygli veg- farenda^ að þjónustustarfsemi sinni. Árni Reynisson svaraði því til, að í nýju reglugerðinni yrðu nánari ákvæði um aug- lýsingaskiltin. Þrívegis hefðu borizt kærur út af slíkum skiltum og hefðu eigendur : öllum tilvikum fallizt á að taka þau niður. Annars væri þetta viðkvæml mál og yrði með einhverju móti að taka tillit til þess að þjónustuveitandi þarf að ná sambandi við vegfarandann Kæmi þá til greina að setja upp opinber skilti, sem leystu úr þessum vanda. FRIÐLAND í SVARFAÐARDAL Framkvæmdastjóri Náttúru- verndarráðs kvað ánægjulegt, hversu gott samstarf hefði tekizt við almenning um nátt- úruverndarmálin og nefndi sem dæmi að fyrir tilmæli bænda í Svarfaðardal væri nú unnið að friðlýsingu lands þar, milli bæjanna Tjarnar og Ósa. Samkvæmt skilgreiningu á friðlandi á lífið, sem á við- komandi svæði þrífst, að hafa forgang og maðurinn að vera þar sem gestur. í þessu Verzlunarráðið: Verzlunarráð íslands hefur nýlega gefið út handhægan upplýsingabækling, sem ætlað- ur er til kynningar á sjónar- miðum fslendinga í landhelgis- deilunni. Tilgangurinn með út- gáfunni er sá að gefa íslenzk- um verzlunaraðilum, sem sam- bönd hafa við fyrirtæki erlend- is, og þá einkanlega í Bret- laridi og Þýzkalandi, kost á að gera hinum erlendu viðskipta- ákveðna tilviki er um varp í votlendi að ræða og mun með friðlýsingunni verða komið í veg fyrir alla mannvirkjagerð þar. GEFA ÚT LEIÐBEININGAR FYRIR FRAMKVÆMDA- AÐILA Sama samstarfsvilja sagði Árni að gætti hjá fram- kvæmdaaðilum. Hefði t.d. góð samvinna tekizt við Vegagerð- ina, enda mikilvægt, þar sem malartaka og vegarruðningur gætu spillt miklum náttúru- verðmætum á eldfjallaslóðum eins og hér hjá okkur. Nú er í undirbúningi upp- sláttarrit, sem Náttúruverndar- ráð iætur gera yfir staði um allt land, sem eru sérstæðir frá jarðfræðilegu eða líffræðilegu sjónarmiði, og á að dreifa þvi til framkvæmdaaðila, þannig að þeir geti haft af því hlið- sjón, þegar ráðizt er í verk- efni. aðilum grein fyrir sjónarmið- um okkar í þessu þýðingar- mikla máli. Bæklingurinn er gefinn út í 16 þús. eintökum á ensku og 6.000 eintökum á þýzku. Þýzka útgáfan er enn ekki komin úr prentun en á ensku nefnist bæklingurinn: „The Cod and Common Sense“ og prýðir for- síðuna litmynd af þeim gula. Áætlað er, að útgáfa þessa Gefur út kynningar- bækling um land- helgismálið FV 11 1972 11

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.