Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 57
IIÍLAIt:
Búast má við hækkunum á
næstu mánuðum
Frjáls verzlun birtir upplýsingar um helztu
bílategundir sem hér eru á boðstólum og
hvaða fyrirtæki hafa umboð fyrir
viðkomandi bíla
Það liggur nú ljóst fyrir, að
innflutningur á nýjum bílum
til íslands, verður ekki eins
mikill á þessu ári og hann varð
metárið 1971. Engu að síður
má reikna með því, að íslenzk-
ir bifreiðakaupendur kaupi
hátt í 6000 nýja bíla á árinu
en í fyrra, sem var algjört
metár í bílasölu hér, voru flutt
inn 7700 ný farartæki, fyrir
1500 milljónir íslenzkra króna.
Meðalverð nýrra bíla er nú
milli 400-420.000 krónur, en
það má búast við einhverjum
hækkunum á næstu mánuðum
vegna verðbólgu og hækkandi
framleiðslukostnaðar í fram-
leiðsluríkjunum. Fyrr á þessu
ári lagði ríkisstjórnin 25% inn-
flutningsgjald á bíla, sem
hækkaði útsöluverð þeirra tals-
vert. Hinn nýi skattur á að
færa ríkissjóði 100 milljónir
króna í tekjur á þessu ári.
Bílainnflutningur er mjög
háður öllum sveiflum efna-
hagslífsins, og ef litið er á inn-
flutningstölur undanfarinna
ára, þá er auðvelt að sjá mik-
inn mun á góðærum og hall-
ærum; árið 1969, þegar efna-
hagur þjóðarinnar var að rétta
við eftir áföll áranna á undan,
nam innflutningurinn um 900
bílum, en 1970 fer hann upp
í 4000 bíla og í fyrra komu
7700 nýir bílar til landsins.
Nú, þegar syrtir í álinn, þá
minnkar innflutningurinn á ný
og meðan engin lausn hefur
fundizt á efnahagsvandanum,
þá er of snemmt að spá nokkru
um bílainnflutning á næsta
ári.
Bílaeign landsmanna er mik-
il, ef miðað er við höfðatölu,
en við erum númer 12-13 í röð-
inni í heiminum, hvað bílaeign
snertir. Sennilega eru hér um
180-185 bílar fyrir hverja 1000
landsmenn. Heildarbílaeign ís-
lendinga er rúmlega 45.000 bíl-
ar.
Hér á landi eru starfandi
23-25 bílaumboð, sem flytja
inn bíla frá Austur- og Vestur-
Evrópu, Bandaríkjunum og
Japan. Þær eru fáar bílateg-
undirnar, sem framleiddar eru
í þessum heimshlutum, sem
ekki eru seldar hér. Ef litið er
á einstök lönd, þá koma flestir
bílar frá Bretlandi, Vestur-
Þýzkalandi, Svíþjóð og Japan,
en þar á eftir frá Frakklandi,
Bandaríkjunum, Tékkóslóvak-
íu, ítalíu, Sovétríkjunum og
Póllandi, sem bættist við á
þessu ári.
FV hefur tekið saman upp-
lýsingar um helztu bílategund-
irnar, sem hér eru á boðstól-
um, og ennfremur hvaða fyrir-
tæki hafa umboð fyrir viðkom-
andi tegundir bíla og fara þess-
ar upplýsingar hér á eftir í
stórum dráttum:
Bifrciðai* »» lanrf-
InmaAarvélai* li.f.
Suðurlandsbraut 14.
„Þetta hefur verið gott sölu-
ár fyrir rússneska bíla,“ sagði
Jón Guðjónsson, verzlunar-
stjóri, „og einn vinsælasti bíll-
inn er Volgan með nýja lag-
inu. Volga er 6 manna bíll og
var útliti hans breytt í lok
s. 1. árs. Volga kostar tilbúin
FV 11 1972
57